fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

„Þessar alvarlegu yfirlýsingar landlæknis voru hunsaðar. Síðan hefur staðan ekki batnað, heldur versnað.

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðstæður á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi eru svo alvarlegar að dag hvern stefna þær öryggi sjúklinga og starfsfóks í bráða og óverjandi hættu. Þetta kemur fram í ályktun 180 manna fundar starfsfólks bráðamóttökunnar sem haldinn var í dag á Grand hótel í Reykjavík.

Ályktunin var samþykkt einhljóða með kröftugu lófataki en þar kemur fram að ástandið á bráðamóttökunni sé ekkert leyndarmál, en samt hafi heilbrigðisyfirvöld ekki brugðist við stöðunni með fullnægjandi hætti. Daglegur fjöldi innlagna er langt umfram það sem húsnæði, mönnun og öryggiskerfi þola. Afleiðingin er sú að spítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í meira en hálft ár þar sem ekki er hægt að tryggja öryggi sjúklinga né starfsfólks, fullnægjandi sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd.

Landlæknir hafi staðfest í júní 2022 að bráðamóttakan uppfyllti ekki faglegar kröfur vegna þrengsla, of mikils sjúklingafjölda og undirmönnunar. Landlækni þótti réttast að loka deildinni vegna hættu og óviðunandi aðstæðna, en það væri þó ekki raunhæfur kostur þar sem deildin er ein sinnar tegundar á landinu og sinnir lífsnauðsynlegri þjónustu. Síðan hafa liðið tæp fjögur ár.

Þessar alvarlegu yfirlýsingar landlæknis voru hunsaðar. Síðan hefur staðan ekki batnað, heldur versnað.“ 

Starfsfólk greinir frá því að 100 sjúklingar séu að jafnaði vistaðir í rými sem er hannað fyrir 36.

„Einangrun er ómöguleg, óreglulegum eða óstöðugum sjúklingum er ekki tryggt öryggi og súrefniskútar ásamt öðrum búnaði eru eins og hráviði á göngum bráðamóttökunnar með augljósri bruna- og sprengihættu. Þetta er alvarleg öryggisógn fyrir starfsfólk og sjúklinga, og með þessum fjölda sjúklinga eru vinnuaðstæður starfsfólks fullkomlega óboðlegar.“

Lengi hafi bráðamóttakan þurft að sinna innlögðum sjúklingum sem ættu að vera komnir á viðeigandi legudeildir. Þetta lami viðbragðsgetu bráðamóttökunnar og hindrar starfsfólk í að fá næði og frið til að sinna lögbundnu starfi sínu í móttöku og meðferð slasaðra og bráðveikra.

Átta starfsmenn hafi í desember greinst með leynda berkla. Þetta undirstriki afleiðingar þess að sýkingavarnir og aðbúnaður uppfylli ekki lög og reglur.

„Við krefjumst þess að vinnustaðurinn uppfylli lög um hollustuhætti, öryggi og aðbúnað og að tafarlaust verði gripið til aðgerða enda ríkir viðvarandi og versnandi neyðarástand og við því verður að bregðast nú þegar.

Við krefjumst þess jafnframt að þeir aðilar sem bera lögbundna ábyrgð bregðist strax við og fylgi eftir athugasemdum, úttektum og nefndarniðurstöðum sem áður hafa komið fram:

  • Embætti landlæknis fylgi úrbótum eftir af festu af þegar gerðu mati á aðstæðum deildarinnar.
  • Vinnueftirlitið framkvæmi heildstæða úttekt á aðbúnaði starfsfólks og bregðist við brotum á vinnuverndarlögum.
  • Heilbrigðiseftirlit taki út aðstæður með tilliti til hollustuhátta og smitvarna.
  • Eldvarnaeftirlit fylgi eftir mati sínu á brunahættu vegna súrefnisbúnaðar og þrengsla.
  • Persónuvernd kanni aðstæður með tilliti til friðhelgi og verndar sjúklinga.
  • Heilbrigðisyfirvöld geri úttekt á skaða og dánartíðni sjúklinga með tilliti til dvalarlengdar á bráðamóttöku.

Öryggi sjúklinga og starfsfólks má ekki lengur vera fórnarkostnaður. Það er með öllu óásættanlegt að þessar aðstæður hafi verið látnar óátaldar árum saman þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir. Í stað loforða gerum við kröfu um úrbætur. Þeir sem fara með stjórn og eftirlit í heilbrigðiskerfinu verða að axla ábyrgð og beita völdum sínum strax.“

 

Ályktunin í heild sinni:

„Aðstæður á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi eru svo alvarlegar að dag hvern stefna þær öryggi sjúklinga og starfsfólks í bráða og óverjandi hættu. Þetta hefur lengi verið opinbert og viðurkennt af stjórnendum spítalans, embætti landlæknis og heilbrigðisyfirvöldum, án þess að brugðist hafi verið við með fullnægjandi hætti.

Daglegur fjöldi innlagðra sjúklinga er langt umfram það sem húsnæði, mönnun og öryggiskerfi þola. Afleiðingin er sú að hvorki er hægt að tryggja öryggi sjúklinga né starfsfólks, fullnægjandi sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd. Spítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í meira en heilt ár án þess að heilbrigðisyfirvöld hafi brugðist við. Aðgerðaleysið endurspeglar það úrræðaleysi og þau lausatök sem Ríkisendurskoðun hefur bent á.

Landlæknir staðfesti í minnisblaði 2. júní 2022 að bráðamóttakan uppfyllti ekki faglegar kröfur vegna þrengsla, of mikils sjúklingafjölda og undirmönnunar og að hvorki væri hægt að tryggja öryggi sjúklinga né gæði þjónustu. Landlæknir sagði á þeim tíma að í raun væri réttast að loka deildinni vegna hættu og óviðunandi aðstæðna, en viðurkenndi jafnframt að það væri ekki raunhæfur kostur þar eð deildin er ein sinnar tegundar á landinu og sinnir lífsnauðsynlegri þjónustu.

Þessar alvarlegu yfirlýsingar landlæknis voru hunsaðar. Síðan hefur staðan ekki batnað, heldur versnað.

Yfir 100 sjúklingar eru að jafnaði vistaðir í rými sem er hannað fyrir 36. Einangrun er ómöguleg, órólegum eða óstöðugum sjúklingum er ekki tryggt öryggi og súrefniskútar ásamt öðrum búnaði eru eins og hráviði á göngum bráðamóttökunnar með augljósri bruna- og sprengihættu. Þetta er alvarleg öryggisógn fyrir starfsfólk og sjúklinga, og með þessum fjölda sjúklinga eru vinnuaðstæður starfsfólks fullkomlega óboðlegar.

Bráðamóttakan hefur í lengri tíma verið að sinna innlögðum sjúklingum sem eiga að vera komnir á viðeigandi legudeildir. Það er ekki hlutverk bráðamóttökunnar að reka tvöfalda legudeild ofan á bráðaþjónustu. Það lamar viðbragðsgetu bráðamóttökunnar og hindrar starfsfólk í að fá næði og frið til að sinna lögbundnu starfi sínu í móttöku og meðferð slasaðra og bráðveikra.

Starfsfólk neyðist til að starfa við aðstæður sem ganga gegn faglegri þekkingu þess og viðurkenndum viðmiðum um góða og örugga heilbrigðisþjónustu. Slíkt ástand er óverjandi og hefur varanleg og neikvæð áhrif á starfsfólk og gæði þjónustu.

Starfsfólk og sjúklingar eru sett í aðstæður þar sem hætta á smiti, slysum, ofbeldi og alvarlegum afleiðingum er augljós og viðvarandi.

Í desember greindust átta starfsmenn með leynda berkla. Þetta undirstrikar afleiðingar þess að sýkingavarnir og aðbúnaður eru ekki í samræmi við lög og reglur. Aðgerðaleysi í uppbyggingu og fjárfestingu í heilbrigðisinnviðum hefur skapað kerfisbundinn vanda sem nú birtist með skýrum og hættulegum hætti á bráðamóttökunni.

Við krefjumst þess að vinnustaðurinn uppfylli lög um hollustuhætti, öryggi og aðbúnað og að tafarlaust verði gripið til aðgerða enda ríkir viðvarandi og versnandi neyðarástand og við því verður að bregðast nú þegar.

Við krefjumst þess jafnframt að þeir aðilar sem bera lögbundna ábyrgð bregðist strax við og fylgi eftir athugasemdum, úttektum og nefndarniðurstöðum sem áður hafa komið fram:

  • Embætti landlæknis fylgi úrbótum eftir af festu af þegar gerðu mati á aðstæðum deildarinnar.
  • Vinnueftirlitið framkvæmi heildstæða úttekt á aðbúnaði starfsfólks og bregðist við brotum á vinnuverndarlögum.
  • Heilbrigðiseftirlit taki út aðstæður með tilliti til hollustuhátta og smitvarna.
  • Eldvarnaeftirlit fylgi eftir mati sínu á brunahættu vegna súrefnisbúnaðar og þrengsla.
  • Persónuvernd kanni aðstæður með tilliti til friðhelgi og verndar sjúklinga.
  • Heilbrigðisyfirvöld geri úttekt á skaða og dánartíðni sjúklinga með tilliti til dvalarlengdar á bráðamóttöku.

Öryggi sjúklinga og starfsfólks má ekki lengur vera fórnarkostnaður. Það er með öllu óásættanlegt að þessar aðstæður hafi verið látnar óátaldar árum saman þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir. Í stað loforða gerum við kröfu um úrbætur. Þeir sem fara með stjórn og eftirlit í heilbrigðiskerfinu verða að axla ábyrgð og beita völdum sínum strax.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“