fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gripinn í tvígang við akstur án réttinda og þarf nú að afplána 32 mánuði í fangelsi – Telur dóminn of þungan

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður var dæmdur í 32 mánaða fangelsi fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið sviptur ökurétti. Manninum fannst dómurinn vera alltof þungur miðað við þau brot sem hann framdi og í ljósi þess að hann hefur snúið blaðinu við. Hann freistaði þess því að fá refsinguna mildaða hjá Landsrétti, sem sagði nei, og svo Hæstarétti sem hefur nú neitað honum um áfrýjunarleyfi.

Málið varðaði tvö skipti þar sem maðurinn var staðinn að því að aka bifreið þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökuréttindum. Maðurinn játaði sök greiðlega en baðst þó vægðar þar sem hann væri kominn á góðan stað í lífinu og gæti ekki séð hvaða tilgangi það ætti að þjóna að svipta hann nú frelsi sínu. Hann var á reynslulausn þegar hann framdi brotin og átti 700 daga eftir óafplánaða af refsingu sinni. Eins var þetta í áttunda skiptið sem hann var dæmdur fyrir umferðarlagabrot, en áður hafði hann ítrekað verið sakfelldur fyrir ölvunar- og sviptingarakstur.

Ákæruvaldið benti á að samkvæmt dómvenju beri að dæma fólk sem ítrekað hefur gerst sekt um umferðarlagabrot í 9 mánaða fangelsi. Auk þess hafi maðurinn rofið skilyrði reynslulausnar með brotum sínum, og það ekki einu sinni heldur tvisvar. Því bæri að dæma hann í 32 mánaða óskilorðsbundið fangelsi.

Þessu mótmælti maðurinn. Hann vísaði til þess að nú hefði hann aðeins gerst sekur um sviptingarakstur, en áður hefði hann verið tekinn fyrir akstur undir áhrifum. Hann væri búinn að vera edrú, hvorki neyta áfengis né annarra vímuefna, í rúmlega fjögur ár. Eins hefði hann verið á vinnumarkaði frá því að hann lauk seinast afplánun refsidóms á árinu 2023. Hann sé í góðum aðstæðum í dag, búinn að ná sáttum við fjölskyldu og börn, hafi gengist undir meðferð og hjálpi nú öðrum með fíknisjúkdóma í sjálfboðavinnu. Hann starfi í dag við pílulagningar. Brotin hans að þessu sinni eigi rætur að rekja til hvatvísi, en hann sé hvatvís að eðlisfari. Í fyrra tilvikinu hafi hann ætlað að koma veikri manneskju til aðstoðar og í því seinna var hann að rjúka í útkall sem pípulagningamaður og vildi ekki að kúnninn myndi sækja hann. Um afmörkuð tilvik hafi verið að ræða og nú fari hann allra sinna ferða á vespu sem hann hafi leyfi til að aka.

Ákæruvaldið taldi að það að brjóta í tvígang gegn skilyrðum reynslulausnar gefi ekki til kynna að maðurinn hafi dregið lærdóm af fyrri háttum og bætt eða breytt lífi sínu svo nokkru nemi.

Héraðsdómur dæmdi hann í 32 mánaða fangelsi með vísan til dómvenju og sú niðurstaða var staðfest í Landsrétti. Maðurinn freistaði þess þá að fá Hæstarétt til að taka málið fyrir enda taldi hann nauðsynlegt að gera greinarmun á akstri undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna annars vegar og akstri án ökuréttinda hins vegar. Maðurinn byggði á því að um mikilvæga hagsmuni hans væri að ræða. Hann hefði ekki neytt vímugjafa árum saman og sé það vandséð hvernig það þjóni tilgangi fyrir hann, fjölskyldu hans eða samfélagið að taka hann úr góðum aðstæðum og senda í fangelsi. Það sé ekki mikil skynsemi í dómvenju sem hafi myndast um þessi mál.

Hæstiréttur taldi ekki að niðurstaða málsins gæti haft verulega almenna þýðingu eða væri mikilvæg af öðrum ástæðum. Beiðni mannsins var því hafnað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump