fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Kjartan úr lífshættu – Enn mikið slasaður en læknar gefa grænt ljós á flutning

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 20:29

Kjartan Guðmundsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjartan Guðmundsson, sem slasaðist lífshættulega í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku þann 17. desember, er úr lífshættu.

Í samtali við Mbl.is segir Agnar Jónsson, vinur Kjartans, að Kjartan hafi gengist undir alls fjórar aðgerðir síðan hann varð líkamlega tilbúinn.Fyrsta aðgerðin fór fram 9. janúar og síðan hafa verið gerðar tvær aðgerðir á hjarta og eina á lærlegg. Gekkst Kjartan undir aðgerð á ósæð, sem beðið hafði verið með í einhvern tíma. Þegar aðgerð hófst var ljóst að ekki hefði mátt tæpara standa, því ástand ósæðarinnar var orðið mjög tæpt.

Agnar tekur skýrt fram að Kjartan er enn mikið slasaður þrátt fyrir að framangreindar aðgerðir hafi gengið vel. Kjartan er að mestu kominn til meðvitundar og er ekki haldið sofandi, en Agnar segir hann þó sofa mikið og ekki átta sig fullkomlega.

„Þetta eru samt sem áður mjög stórar fréttir í stóra samhenginu. Það var enginn sem spáði því að hann yrði ennþá á meðal okkar eftir 42 daga. Þetta er eiginlega bara kraftaverk og hann er kallaður kraftaverkadrengurinn og víkingurinn þarna úti.“

Læknar hafa gefið grænt ljós á að flytja megi Kjartan til Íslands, sem Agnar segir flókið skipulag. Löng endurhæfing er framundan hjá Kjartani.

Agnar þakkar stuðning sem Kjartani og aðstandendum hans hefur verið sýndur og segir söfnun hans til handa hafa komið sér vel og nýst vel.

Lesa má um Söfnunarsjóð Kjartans og styrkja hér. Safnast hafa 15.790.000 kr.

Lesa má nánar um málið á Mbl.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna