fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fókus

Þórdís um dauða litla frænda síns árið 2020: „Það gerðist eitthvað innra með mér eftir að hann lést“

Fókus
Mánudaginn 2. febrúar 2026 10:30

Þórdís Rögn Jónsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Rögn Jónsdóttir er 28 ára iðnaðarverkfræðingur, annar eigandi og stofnandi fyrirtækisins sem bjó til og hannaði Bata-appið. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.

Árið 2020 missti hún litla frænda sinn úr ofskömmtun stuttu fyrir tvítugsafmælið hans.

Þórdís nefndi að tilhugsunin um að frændi sinn hefði gengið út af meðferðarstöð með einungis blað í höndunum og takmörkuð plön um framhaldið hefði ekki verið góð.

„Það gerðist eitthvað innra með mér eftir að hann lést og ég áttaði mig á því að hans saga væri ekki einsdæmi.”

Í kjölfarið hóf hún fyrir alvöru að þróa forritið í samstarfi við SÁÁ. Seinna í ferlinu komu einnig Hlaðgerðarkot og Krýsuvík inn.

„Ég hef fengið að tala við yfir þrjú hundruð manns í þessari þróun. Fengið að fara inn á meðferðarstofnanir að tala við fólk og vinna appið í samræmi við þarfir þeirra sem myndu nota það.“

Það sem Þórdís sá og heyrði í samtölum sínum við fólk í meðferðum var að flestir áttu það sameiginlegt að upplifa skömm, fordóma og skilningsleysi frá samfélaginu.

Iðnaðarverkfræðingurinn í Þórdísi átti erfitt með að skilja hvernig meðferðargeirinn virkaði án þess að hafa nokkurn upphafspunkt eða núllpunkt og engan mælikvarða um langtíma árangur.

„Krýsuvík er eina meðferðarstöðin að minni vitund sem metur langtíma árangur sinna skjólstæðinga með símtölum til þess að fylgjast með stöðu fólks eftir að meðferð lýkur.”

Þórdís og hennar teymi hafa ákveðið að fara af stað með herferð sem heitir Hvað er bati fyrir þér?

„Við ákváðum að fá fólk í viðtöl í mynd sem mun svo rúlla á samfélagsmiðlum, allavega í febrúar. Ástæða nafnsins er að bati getur verið svo mismunandi fyrir hvern og einn, markmiðin eru svo misjöfn.”

Í grunninn er markmiðið að auka umræðu, minnka fordóma og sýna fólki að vímuefnavandi fer ekki í manngreiningarálit og snýst ekki um viljastyrk á neinn hátt. Hægt er að hlusta á þáttinn hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Jóel fór með pakka til ókunnugs 7 ára drengs – „Hún féll og hendir honum út um miðja nótt, korter í jól“

Jóel fór með pakka til ókunnugs 7 ára drengs – „Hún féll og hendir honum út um miðja nótt, korter í jól“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þórðargleði þegar ljóst varð að Timothée Chalamet fengi ekki Óskarinn – En hvers vegna snerist fólk gegn leikaranum?

Þórðargleði þegar ljóst varð að Timothée Chalamet fengi ekki Óskarinn – En hvers vegna snerist fólk gegn leikaranum?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Louis Theroux nefnir verstu manneskju sem hann hefur tekið viðtal við

Louis Theroux nefnir verstu manneskju sem hann hefur tekið viðtal við
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lára gáttuð á verðlaunum sem fjögurra ára sonur hennar fékk á fótboltamóti um helgina

Lára gáttuð á verðlaunum sem fjögurra ára sonur hennar fékk á fótboltamóti um helgina
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stutt upptaka úr Ring-myndavél setti af stað óvænta atburðarás

Stutt upptaka úr Ring-myndavél setti af stað óvænta atburðarás
Fókus
Fyrir 4 dögum

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir ástarsambandið við Scorsese hafa haft fleiri lög en lasagna

Segir ástarsambandið við Scorsese hafa haft fleiri lög en lasagna