fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Vandar bróður sínum ekki kveðjurnar og kallar hann skíthæl

Pressan
Föstudaginn 30. janúar 2026 11:30

Anthony Kazmierczak var yfirbugaður af öryggisvörðum. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maðurinn sem réðst að þingkonunni Ilhan Omar á íbúafundi í Minneapolis í vikunni er „skíthæll“ sem hefur um langa hríð haft brenglað hatur á sómölskum innflytjendum.

Þetta segir bróðir mannsins í samtali við The Independent.

Maðurinn, Anthony Kazmierczak, hljóp að Omar, hrópaði ókvæðisorðum að henni og sprautaði illa lyktandi vökva að þingkonunni þar sem hún stóð við ræðupúlt. Vökvinn var brúnleitur og óttuðust margir að um væri að ræða hættulegt efni. Síðar kom í ljós að um eplaedik var að ræða.

„Það kemur mér alls ekki á óvart að þetta hafi gerst,“ sagði bróðirinn sem vildi ekki láta nafns síns getið. Þeir hafa ekki verið í neinu sambandi og vandar hann bróður sínum ekki kveðjurnar.

„Því miður eru hann og móðir mín bæði öfgahægrimenn.“

Ihlan Omar fæddist í Sómalíu árið 1982 en fluttist með fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna árið 1982. Bróðirinn er sannfærður um að árásin tengist uppruna Omar.

„Hann hefur hatað sómalíska samfélagið í líklega 20 ár,“ sagði bróðirinn, en Minnesota er heimkynni eins stærsta hóps íbúa af sómölskum uppruna í Bandaríkjunum.

„Það er ástæða fyrir því að ég tala ekki við hann… Hann er fullur af reiði, ég hef ekki hugmynd um hvaðan hún kemur. Hann hefur alltaf verið svona,“ sagði hann.

Öryggisverðir yfirbuguðu Kazmierczak og síðar var hann handtekinn af lögreglunni í Minneapolis. Hann var kærður fyrir líkamsárás af þriðju gráðu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér