fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Eiginkona eins helsta ráðgjafa Trumps höfð að háði og spotti – Kallaði frjálslynt lýðræði vók

Pressan
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 15:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki eru allir sammála um skilgreininguna á vók (e. woke) og getur það gert rökræður flóknar þegar fólk er að rífast um hugtak sem það leggur ekki sama skilning á. Fyrir suma þýðir vók að vera vakandi fyrir óréttlæti í samfélaginu, sérstaklega hvað varðar kynþáttafordóma, kynjajafnrétti og minnihlutahópa. Aðrir segja að vók eigi við um sjálfsmyndarpólitík, dyggðarskreytingu og siðferðislegt yfirlæti. Þetta eru aðeins tvö dæmi um þær fjölmörgu skilgreiningar sem til eru á hugtakinu.

Katie Miller virðist ganga ansi langt í sinni skilgreiningu og fellir þar undir sjálft tjáningarfrelsið, mannvirðingu og réttarríkið. Katie er eiginkona eins helsta hugmyndafræðings og ráðgjafa Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Hún starfaði áður sem fréttafulltrúi heimavarnarráðuneytisins á fyrra kjörtímabili Trumps og síðar sem samskiptastjóri og fjölmiðlafulltrúi þáverandi varaforsetans, Mike Pence. Hún starfaði síðan með hagræðingardeild auðkýfingsins Elons Musk, DOGE, og hélt áfram sem ráðgjafi hans eftir að Musk sagði skilið við hið opinbera.

Katie er nú höfð að háði og spotti á samfélagsmiðlum eftir að hún skrifaði þar athugasemd þar sem hún kallaði grunngildi lýðræðisins vók.

Stofnandi gervigreindarfyrirtækisins Antrhopic, Chris Olah, birti færslu á X þar sem hann lofaði því að fyrirtæki hans ætlaði áfram að halda í heiðri meginreglur hins klassíska frjálslynda lýðræðis (e. classical liberal democracy) – þá sérstaklega málfrelsi, mannlega reisn og réttarríkið.

Katie Miller sármóðgaðist og skrifaði sjálf færslu: „Ef þetta er það sem þeir segja opinberlega þá er gervigreindarlíkanið þeirra forritað þannig. Vók og róttækt vinstri hugmyndafræði er það sem þeir vilja að þú treystir á.“

Þessi ummæli Katie hafa vakið athygli. Fólk veltir því fyrir sér hvort hún viti hvað frjálslynt lýðræði er í raun og veru eða hvort hún hafi nú í alvöru játað að hún sé á móti slíku. Flestir telja ljóst að hún hafi annaðhvort viljandi afbakað það sem Chris Olah skrifaði eða þá að hún hafi misskilið færslu hans.

Hlaðvarpsstjórinn Jon Favreau svarar Katie og skrifar: „Já, við erum mjög meðvituð um að þú og eiginmaður þinn hatið bandaríska frjálslynda lýðræðið sem byggir á frjálsum kosningum, réttarríkinu, jafnrétti, málfrelsi, fjölmiðlafrelsi og trúfrelsi.“

 

Netverjar létu til sín taka í athugasemdum og spurðu Katie meðal annars hvort hún hafi nokkuð borðað blýmálningu í æsku.  „Þetta er svo neyðarlegt fyrir þig,“ skrifa nokkrir. Aðrir benda á að ef frjálslynt lýðræði er nú vók þá hljóti bandaríska stjórnarskráin að vera það líka sem og stofnfeður Bandaríkjanna og allir forverar Trumps.

Frjálslynt lýðræði er hugtak sem er notað um þá stjórnskipun sem er algengust á Vesturlöndum í dag og einkennist af því að ríkisvaldinu eru settar skorður með lögum, fulltrúalýðræði, stjórnarandstöðu með viðurkennd réttindi, markaðshagkerfi og frjálsri fjölmiðlun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér