fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fangi sem komst í sögubækurnar tekinn af lífi

Pressan
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Charles Victor Thompson, 55 ára fangi á dauðadeild í Texas, var tekinn af lífi með banvænni sprautu í gærkvöldi. Hann er fyrsti fanginn sem tekinn er af lífi í Bandaríkjunum á þessu ári.

Charles var sakfelldur fyrir að myrða fyrrverandi kærustu sína, Glendu Dennise Hayslip og nýjan kærasta hennar, Darren Keith Cain, í íbúð Glendu í úthverfi Texas í apríl 1998.

Samkvæmt dómsskjölum voru Hayslip og Cain að stinga saman nefjum þegar Thompson kom í íbúð Hayslip um miðja nótt og hóf rifrildi við Cain.

Lögregla var kölluð á staðinn og var Thompson gert að yfirgefa svæðið. Hann sneri aftur þremur klukkustundum síðar og skaut bæði Hayslip og Cain. Cain lést á staðnum en Hayslip lést á sjúkrahúsi viku síðar.

Um klukkustund áður en aftakan fór fram birti Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurð þar sem síðustu áfrýjun Thompson var hafnað. Á mánudag hafnaði náðunarnefnd Texas beiðni Thompson um að dauðadómi hans yrði breytt í lífstíðarfangelsi.

Thompson komst aftur í fréttirnar í nóvember 2005 þegar honum tókst að flýja úr fangelsi. Hann hafði undirbúið flóttann vel og smyglað ýmsum munum inn í klefa sinn, þar á meðal borgaralegum fötum, lykli að handjárnum og fölsuðum skilríkjum.

Hann þóttist svo vera að fara á fund með lögmanni og nýtti fundarherbergi í fangelsinu til að skipta um föt. Hann gekk svo út úr fundarherberginu, snyrtilega klæddur, og veifaði fölsuðu skilríkjunum framan í starfsmenn fangelsisins og slapp þannig út.

Thompson var handtekinn þremur dögum síðar í Louisiana þegar hann var að reyna að útvega sér peninga til að flýja til Kanada. Hann er eini fanginn á dauðadeild í Bandaríkjunum sem tekist hefur að flýja úr fangelsi á þessari öld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie