fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Slökkviliðsmaður myrti eiginkonuna eftir að hafa lesið dagbókina hennar

Pressan
Mánudaginn 26. janúar 2026 21:52

Hin látna, Mayra Jiminez.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður í Hollywood-borg er grunaður um að hafa banað eiginkonu sinni með exi eftir að hafa lesið dagbókina hennar.

Hinn grunaði, Andrew Jiminez, 45 ára gamall, hafði sjálfur samband við lögreglu og bað um að heimili hans yrði kannað þar sem honum hefði ekki tekist að hafa upp á eiginkonu sinni, Mayra Jiminez, 55 ára.

Er lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir konuna látna. Hún virtist hafa verið barin til bana með exi sem einnig var á vettvangi. Samkvæmt heimildum var aðkoman hryllileg.

Í yfirlýsingu frá lögreglu kemur fram að fundist hafi dagbók hinnar látnu við húsleit. Svo líti út sem dagbókinni hafi nýlega verið flett. Í dagbókarskrifunum játar Mayra á sig framhjáhald.

Eiginmaður hennar, Andrew Jiminez, var handtekinn, grunaður um að hafa banað henni. Óstaðfestar heimildir herma að hann hafi játað sig sekan í lögregluyfirheyrslu. Hann situr núna í gæsluvarðhaldi en getur fengið sig lausan gegn tveggja milljóna dollara tryggingu. Rannsókn málsins heldur áfram.

Nánar má lesa um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér