fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stefán Einar um „landskjálftann mikla“ um helgina – „Annað eins hefur ekki sést í háa herrans tíð“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 26. janúar 2026 15:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson segir að landskjálfti hafi farið um borgarpólitíkina um helgina og að annað eins hafi ekki sést í háa herrans tíð. Þar hafi borgarstjóranum sjálfum verið hafnað í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri laut í lægra haldi í prófkjörinu fyrir nýkratanum Pétri Marteinssyni sem vann oddvitaslaginn með sannfærandi sigri – 3.063 atkvæðum gegn 1.668. Heiða Björg lýsti yfir vonbrigðum eftir prófkjörið og sagðist hafa staðið í þeirri trú að Samfylkingin væri ekki á þeim stað að hafna reyndri konu.

Stefán Einar segir að það sé eitt að fella sitjandi oddvita, það sé annað meira þegar viðkomandi er jafnframt borgarstjóri.

„Landskjálfti mikill fór um borgarpólitíkina um liðna helgi þegar Heiða Björg Hilmisdóttir var felld í prófkjöri meðal Samfylkingarfólks. Annað eins hefur ekki sést í háa herrans tíð. Það sem gerir málið allt svo stórt er sú staðreynd að Heiða Björg er borgarstjóri. Henni hefur reyndar áður verið trúað fyrir mikilli ábyrgð, meðal annars sem formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga. Af þeim stalli var henni hins vegar steypt í fyrra eftir að hún kom í bakið á öðru forsvarsfólki sveitarfélaganna í miðri kjaradeilu við kennarastéttina.“

Þetta hafi ekki verið það eina merkilega sem átti sér stað um helgina en þá var stofnað félagið Æruvernd. Markmið félagsins er að verja æru alls fólks, lifandi og látins, og endurreisa mannorð séra Friðriks Friðrikssonar heitins, æskulýðsleiðtoga og stofnanda KFUM og K og íþróttafélagsins Vals.

Stefán Einar segir að hámark aðfararinnar að minningu séra Friðriks hafi án efa verið þegar borgaryfirvöld létu fjarlægja af honum styttu sem stóð við Lækjargötu. Þar með hafi minning hans bókstaflega og táknrænt verið felld af stalli.

„Brjóstmynd af sr. Friðrik er þó enn að finna á safni listamannsins fyrrnefnda. Og fyrir örfáum dögum settist borgarstjórinn fallni niður undir henni í þeim erindagjörðum að friða Laugarnesið. Hefði borgarstjóri sem gat ekki hugsað sér styttuna við Lækjargötu átt að gera athugasemd við þann félagsskap sem hér var boðið upp á? Eða er þetta bara allt í nösunum á slaufunarseggjunum?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“