fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
433Sport

Hafnaði evrópsku stórliði fyrir Íslendingaliðið

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 26. janúar 2026 14:30

Tom Brady er einn af eigendum Birmingham. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Carlos Vicente hefur ákveðið að ganga til liðs við Birmingham og hafna þar með Ajax. Þetta kemur fram í hollenskum miðlum.

Spænski kantmaðurinn er væntanlegur til Birmingham á mánudag, þar sem hann mun skrifa undir samning og fá hærri laun en hann hefði fengið í Amsterdam.

Vicente kemur frá Deportivo Alaves. Birmingham situr í 13. sæti ensku B-deildarinnar eftir 29 leiki og er sex stigum frá umspilssæti. Félagið er stórhuga, en Tom Brady er einn eigenda þess.

Íslenski landsliðsmaðurinn Willum Þór Willumsson er á mála hjá Birmingham. Það var Alfons Sampsted einnig þar til um helgina, en þá gekk hann í raðir Go Ahead Eagles í Hollandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum
433Sport
Í gær

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sturlaður kostnaður United við Ruben Amorim kemur í ljós eftir uppgjör

Sturlaður kostnaður United við Ruben Amorim kemur í ljós eftir uppgjör
433Sport
Fyrir 2 dögum

Greið leið Arsenal í undanúrslit Meistaradeildarinnar – Svona raðast þetta

Greið leið Arsenal í undanúrslit Meistaradeildarinnar – Svona raðast þetta