fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Meira að segja hægrimönnum misboðið eftir að ICE skaut mann til bana um helgina – „Hvernig hefðum við brugðist við?“

Pressan
Mánudaginn 26. janúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bráðahjúkrunarfræðingurinn Alex Pretti var skotinn til bana af tolla- og innflytjendaeftirlitinu ICE á laugardaginn í borginni Minneapolis. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem fulltrúar ICE verða bandarískum ríkisborgara að bana í borginni, en þriggja barna móðir að nafni Renee Good var skotin til bana þann 7. janúar. Allt er nú á suðupunkti í Minneapolis þar sem aðgerðum ICE er mótmælt af miklum krafti.

Morðið á Pretti hefur vakið töluvert meiri reiði meðal hægrimanna. Pretti var byssueigandi, skáti, sérhæfður í bráðahjúkrun og hafði starfað í þágu uppgjafahermanna. Þegar hann var skotinn var hann að reyna að aðstoða konu sem hafði fallið til jarðar eftir að ICE-fulltrúi hrinti henni. Myndbönd af atvikinu eru í dreifingu og hafa vakið reiði enda sýna þau allt aðra atburðarás heldur en yfirvöld halda fram í málinu. Þar sjást ICE-fulltrúar snúa Pretti til jarðar, þeir virðast svo afvopna hann og skjóta hann ítrekað þar sem hann liggur meinlaus á jörðinni.

Segja ráðherrann hafa vikið sér undan erfiðri spurningu

FOX-fréttastofan ræddi við heimavarnarráðherrann Kristi Noem um helgina og ákvað blaðamaður að spyrja ráðherrann beint hvort það væri í samræmi við starfsreglur ICE að grípa til banvænnar valbeitingar eftir að einstaklingur hefur verið afvopnaður.

Fréttamaður: „Svo virðist vera að Alex Pretti hafi verið afvopnaður. Ef hann hafði verið afvopnaður, er það í samræmi við reglur að nota banvæna valdbeitingu?“
Noem: „Það er eitthvað sem verður skoðað í þessari rannsókn. Öll myndbönd verða greind. Allt verður tekið til skoðunar. Og ég get ekki tjáð mig allt sem þessir fulltrúar voru að hugsa en þetta gerðist allt á nokkrum sekúndum. Það er augljóst að þeir óttuðust um líf sitt og að aðgerðir miðuðu að því að verja þá sjálfa og fólkið í kring. Ef þú horfir á myndböndin og hlustar á þau geturðu heyrt að einhver öskrar: Byssa, byssa, byssa. Og þessir fulltrúar og lögreglumenn brugðust við þessu.“

Breski miðillinn DailyMail, sem gjarnan þykir hægrisinnaður, slær því upp að þarna hafi Noem vikið sér undan erfiðri spurningu. Vissulega hafi viðstaddir öskrað þegar þeir sáu byssu en það sé óvíst hvort það var byssa Pretti sem var hrópað um og allt eins líklegt að fólk hafi öskrað þegar ICE tók fram vopn sín. Noem hafi eins gagnrýnt það að Pretti hafi verið vopnaður, en ekki nefnt hvort að Pretti hafi tekið vopnið fram og ógnað ICE með því. Miðillinn telur augljóst af myndböndum að Pretti hafi verið afvopnaður áður en hann var skotinn og að skotvopnafræðingur telji líklegast að fyrsta skotið hafi verið slysaskaut sem hljóp úr vopni Pretti í höndum ICE-fulltrúans sem tók það af honum. Við þetta hafi gripið um sig skelfing hjá ICE með áðurnefndum afleiðingum.

Af þeim myndböndum sem Pressan hefur séð, ásamt þeim greiningum sem erlendir miðlar hafa gert á þeim, var Pretti með símann sinn á lofti þegar ICE hafði afskipti af honum. Pretti sést aldrei með vopn í hendinni.

Ég sé ekki fyrir mér að Trump vinni þetta

MAGA-áhrifavaldurinn Tim Pool segir að yfirvöld séu líklega ekki að ná að selja lýsingu sína af atburðum að þessu sinni. Myndbönd sýni að Pretti hafi verið afvopnaður áður en hann var skotinn.

„Svo virðist sem að maðurinn gæti hafa verið afvopnaður áður en hann var skotinn. Þessi atburðarás er þversagnakennd. Það skiptir hvoruga hliðina [á hinum pólitíska ás] máli á þessum tímapunkti hvað réttlætir þetta eða ekki. Ég sé ekki fyrir mér að Trump vinni þetta.“

Fyrrum þingkona Repúblikana, Marjorie Taylor Greene, hefur beðið MAGA-liða að opna augun. Það sé verið að kynda undir borgarastyrjöld. Hún minnir á að rétturinn til að bera vopn er tryggður í stjórnarskránni. Það sé eitt að bera vopn en annað að draga vopnið fram.

„Það er ekkert rangt við að mótmæla með lögmætum og friðsömum hætti og taka það upp.“

Hún biður MAGA-liða um að ímynda sér hvernig þeir hefðu brugðist við ef Joe Biden væri enn forseti og að það væri MAGA-hreyfingin sem væri að mótmæla. Hefði þeim þá þótt það í lagi að mótmælandi sem var aðeins að aðstoða konu sem hafði fallið til jarðar og fengið yfir sig piparúða yrði skotinn til bana af yfirvöldum.

„Hvernig hefðum við brugðist við?“ spyr Greene og segir að bæði vinstri- og hægrimenn þurfi að hætta að horfa á allt með pólitískum augum, annað muni leiða til borgarastyrjaldar.

Hagsmunasamtök byssueigenda hafa eins gagnrýnt viðbrögð yfirvalda sem gefi til kynna að yfirvöld megi skjóta menn til bana fyrir það eitt að bera löglega vopn á mótmælum. Slík afstaða stríði gegn stjórnarskrá landsins sem tryggir Bandaríkjamönnum réttinn til að bera vopn á almannafæri.

Noem gagnrýnd

Heimavarnaráðherrann, Kristi Noem, hefur farið mikinn síðan atvikið átti sér stað á laugardaginn. CNN hefur farið yfir fullyrðingar hennar um málið og bent á rangfærslur. Til dæmis haldi Noem því fram að Pretti hafi ráðist á ICE, þrátt fyrir að myndbönd sýni annað. Hún haldi því eins fram að hann hafi tekið fram vopn sitt og ógnað ICE-fulltrúum, en myndbönd sýna annað. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur heitið því að atvikið verði rannsakað.

Blaðamaður FOX, Mary Katharine Ham, skrifaði á samfélagsmiðla um helgina að Noem væri ítrekað að ljúga um málið og grafa undan stjórnarskránni.

Politico greinir frá því að nokkrir þingmenn repúblikana séu farnir að hafa áhyggjur af því hvaða áhrif aðgerðir ICE muni hafa á kosningarnar í nóvember og hvort það væri ekki rétt í stöðunni að hlusta á íbúa Minneapolis og leyfa þeim að ákveða hvort þeir vilja heldur: harðar aðgerðir ICE eða ólöglega innflytjendur. Líklega væri best að senda ICE annað að svo stöddu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér