

Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur verður með áhugaverðan fyrirlestur á Borgarbókasafninu Spönginni mánudaginn 26. janúar undir yfirskriftinni 70 götumyndir og fleira.
Í fyrirlestri sínum ætlar Páll að fjalla um hvaða umhverfisþættir það eru sem skipta máli í hinu byggða umhverfi ef byggja á manneskjulegt og uppbyggilegt umhverfi.
„Á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land er nú að eiga sér stað kúvending í þróun byggðar,“ segir hann. „En spurningin er, hvort sú kúvending fari fram á forsendum fólksins.“
Páll hefur áralanga reynslu af skipulagsmálum og verkefnum sem snúa að verndun byggingararfsins, ásamt því að vinna að sálfræðilegum rannsóknum. Þá hefur hann um árabil verið ötull talsmaður þess að sálfræðileg sjónarmið fái sitt rými í hönnunar- og skipulagsferlum og lögð sé ríkari áhersla á samspil fólks og umhverfis.
„Hérlendis vantar grunnrannsóknir á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á fólk, og það þarf að bæta þar úr,“ nefnir hann í því samhengi. „Við getum einfaldlega ekki byggt gott og heilsusamlegt umhverfi fyrir fólk ef við vitum ekki hvers konar umhverfi er gott og heilsusamlegt fyrir fólk.“

Páll ætlar að ræða mat fólks á umhverfinu í fyrirlestrinum, en umræðan byggir á niðurstöðum könnunar sem hefur verið í gangi frá árinu 2014.
Ef tími gefst verður jafnframt fjallað um íbúasamráð og hvernig nýta má tölvutækni til að bæta samtalið milli íbúa, stjórnvalda og annarra hagsmunaaðila.
Um Pál Jakob Líndal
Páll er með doktorspróf í umhverfissálfræði frá Háskólanum í Sydney. Hann er sérfræðingur í mati á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á heilsu og vellíðan, hvort sem um er að ræða náttúru eða manngert umhverfi.