

Við Íslendingar – líkt og Norðmenn – erum heppnir að hafa góðan aðgang að fyrsta flokks sjávarfangi, en eins og allir ættu að vita er fiskur meinhollur.
Í viðtali við vefinn IntraFish fer Rassat yfir áhrifin sem áskorunin hafði á heilsu hans. Í 31 dag borðaði hann ekkert nema fiskmeti og í lok áskorunarinnar kom í ljós að hann hafði misst þrettán sentímetra af mittismáli sínu og mældist þar að auki hraustari á öllum helstu heilsuvísum.
Ákorunin kom frá norska sjávarafurðaráðinu, Norwegian Seafood Council, og segir Dag Sorli, fjölmiðlafulltrúi ráðsins, að hugmyndin hafi kviknað eftir að ráðið fékk spurnir af fjölskyldu sem prófaði þetta eitt sinn með góðum árangri.
„Okkur langaði að gera eitthvað svipað svo við höfðum samband við Julian,“ segir Dag en vitanlega var markmiðið að hvetja almenning til að borða meiri fisk.
Verkefnið var gert að fimm þátta YouTube-þáttaröð sem birt var á samfélagsmiðlum samtakanna.
Rassat segist hafa samþykkt þátttökuna án mikillar umhugsunar. „Mér líkar við áskoranir og þetta var eitthvað sem ég hafði aldrei prófað áður,“ sagði hann í viðtali við IntraFish. Hann ákvað jafnframt að sleppa áfengisneyslu á meðan áskorunin stóð yfir og hóf reglubundna líkamsrækt.
Í upphafi var hann samkvæmt mati læknis á mörkum ofþyngdar, en eftir fáeinar vikur fann hann fyrir verulegum breytingum. Hann segist hafa haft meiri orku, betri líðan og meiri stjórn á mataræði sínu. Þrátt fyrir freistingar, meðal annars á þjóðhátíðardegi Noregs í fyrravor, hélt hann sig að mestu við planið.
Í lok þáttarins kom í ljós að auk þess að hafa misst 13 sentímetra í mittismáli sýndu aðrar mælingar, til dæmis á blóði og blóðþrýstingi, mjög jákvæðar breytingar.
Óljóst er hversu stór hluti árangursins má rekja eingöngu til aukinnar neyslu á fiskmeti og hversu mikið til annarra lífsstílsbreytinga, svo sem hreyfingar og áfengisbindindis. Ljóst má þó vera að aukin neysla á fiskmeti hefur haft sitt að segja.
Rassat hefur þó haldið breyttum lífsstíl áfram eftir að tökum lauk. Hann borðar nú sjávarfang nokkrum sinnum í viku í stað örfárra skipta á mánuði og segist ekki lengur sækjast í óhollan mat með sama hætti og áður.