fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Rannsókn lokið á Edition-morðunum – Vildi ekki að dóttirin yrði ein eftirlifandi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 18:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rannsókn er lokið á Edition-málinu svokallaða þar sem frönsk feðgin fundust látin í herbergi hótelsins síðastliðið sumar. Málið er nú komið á borð héraðssaksóknara sem mun taka ákvörðun um hvort að eiginkona og móðir hinna látnu, sem grunuð er um verknaðinn, verði ákærð. RÚV greinir frá.

Þar er vitnað í nýbirtan úrskurð Landsréttar frá því sumar þar sem atburðarásinni er lýst. Þar kemur fram að þegar viðbragðsaðilar komu á svæðið hafi konan legið særð á gólfi herbergisins og viðurkennt að hún hefði drepið tvær manneskjur, eiginmann sinn og dóttur. Bæði lágu þau látin í herberginu, með stunguáverka, og var aðkoman ófögur.

Í úrskurðinum kemur fram að hjónin hafi komið til landsins sem ferðamenn, notið alls þess sem Ísland hefur upp á að bjóða og átt bókað flug heim, til Írlands þar sem þau voru búsett, þennan sama örlagaríka dag.

Fram kemur að lögreglumaður hafi heyrt konuna ræða við hjúkrunarfræðing á bráðamóttökunni í Fossvogi og þar hafi hún sagt eiginmann sinn glíma við alvarlega nýrnabilun og vera dauðvona. Hún hafi ekki viljað að dóttirin yrði ein eftirlifandi en sjálf hafi hún ætlað að taka eigið líf eftir ódæðin.

Konan var leyst úr gæsluvarðhaldi á dögunum en sætir farbanni á meðan málið er í ferli. Hún þarf að melda sig til lögreglu tvisvar í viku.

Málið er með öllu fordæmalaust hérlendis en nánar er fjallað um málsatvik og undarlega sögu fjölskyldunnar á vef RÚV.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump