fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Brösug byrjun Nice air – Hætta við fyrstu ferðina milli Akureyrar og Kaupmannahafnar

Eyjan
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 17:24

Niceair 2.0 fer ekki vel af stað

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfélagið Nice Air, sem hugðist hefja sig til flugs í febrúar frá Akureyri til Kaupmannahafnar hefur hætt við fyrstu ferðina sem ráðgerð var 19. febrúar næstkomandi sem og heimferðina 22. febrúar. Frá þessu greinir Akureyri.net en farþegar, sem keypt höfðu miða, fengu tilkynningu um þetta fyrr í dag. Akureyri.net greinir frá.

Í tölvupóstinum bendir þó ekkert til þess að árar hafi verið lagðar í bát. Í skilaboðum til viðskiptavina kemur fram að undirbúa þurfi verkefni betur „áður en við getum tekið á móti farþegum um borð á ábyrgan hátt,“ eins og segir í póstinum.

Forstjóri fyrirtækisins, hinn þýski Martin Michael, boðaði óvænt til blaðamannafundar í desember þar sem greint var frá fyrirætlununum að endurreisa Nice air. Hið nýja félag var sagt fjármagnað af eigin fé, sem kæmi úr fjölskyldurekstrinum Whiteskarkgroup. Að sögn forstjórans hefur hann áratugareynslu af ferðaþjónustu og flugrekstri en viðurkenndi þó að hið fyrirhugaða rekstrarfyrirkomulag væri framandi.

Sagði hann mikilvægt að fara hægt af stað og hafði fullan skilning á efasemdaröddum eftir að flugfélag með sama nafni var rekið í þrot fyrir nokkrum árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa