

Halldóra Mogensen, fyrrverandi þingkona Pírata, segir farir sínar ekki sléttar eftir að hún lagði bifreið sinni í bílakjallara Grósku um daginn. Hún lagði bílnum í tvær klukkustundir en var þó rukkuð fyrir þrjár. Hún greinir frá þessu á Facebook og spyr hvort engar reglur séu til staðar til að tryggja vernd neytenda í svona aðstæðum.
„Ég lagði bílnum í bílakjallara Grósku um daginn í 2 klst. Þegar ég var svo rukkuð um 3 klst þá sendi ég email á rekstraraðila til að fá útskýringu og fékk eftirfarandi svar:
„Lagning þín stóð yfir í 2:05 og innheimt er fyrir hverja byrjaða klukkustund.“
Er ég ein um að finnast þetta gróft? Mega einkaaðilar bara haga þessum málum eins og þeim sýnist? Eru engar reglur til staðar sem tryggja vernd neytenda?“
Fyrrum þingkonan lýsir því í athugasemd að vissulega taki fyrirtækið sem rekur bílakjallarann, Gulur bíll, það fram á vefsíðu sinni að rukkað sé fyrir hverja byrjaða klukkustund.

Hún telur það þó verulega ósanngjarna viðskiptahætti að rukka fyrir tíma sem ekki er nýttur. Hún kallar eftir skýrum og gagnsæjum reglum til að tryggja neytendavernd.