

Matvælastofnun hefur fengið tilkynningu um að brúni hundamítillinn (Rhipicephalus sanguineus) hafi greinst á hundi sem var í skoðun á Dýraspítalanum í Víðidal vegna kláða og útbrota í andliti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAtvælastofnun. Þar segir að brúni hundamítillinn hafi ekki oft greinst hér á landi og sé ekki landlægur á Íslandi. Í þau skipti sem hann hefur greinst hafi í hvert skipti tekist að uppræta hann. Bendir Matvælastofnun á að unnið sé markvisst að því að koma í veg fyrir að þessi sníkjudýrategund nái fótfestu hér á landi.
Hvað geta hundaeigendur gert?
Matvælastofnun hvetur alla hundaeigendur til að:
Matvælastofnun segir að snemmgreining skipti miklu máli til að koma í veg fyrir útbreiðslu.
Hvernig berst mítillinn til landsins?
Brúni hundamítillinn getur borist hingað með fólki og farangri frá löndum þar sem hann er algengur, sérstaklega ef viðkomandi hefur verið í snertingu við dýr eða dýraumhverfi.
Til að draga úr áhættu er mikilvægt að:
Um brúna hundamítillinn
Smitsjúkdómar
Erlendis þekkist að brúni hundamítillinn geti borið smitefni sem valda alvarlegum sjúkdómum í hundum, svo sem Ehrlichia canis og Babesia canis. Þessi smitefni hafa ekki greinst á Íslandi.
Einnig getur mítillinn borið bakteríuna Rickettsia conorii, sem veldur svokölluðum Miðjarðarhafssótt í fólki. Sá sjúkdómur hefur ekki greinst hér á landi.
Viðbrögð við greiningu
Ef brúni hundamítill greinist:
Til dýralækna
Matvælastofnun hvetur alla dýralækna til að vera sérstaklega á varðbergi.