fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Gagnrýnir fréttaflutning um styrki – „Hér var verið að matreiða fréttaefni til að þjóna ákveðnum pólitískum tilgangi“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 19. janúar 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið ákvað í nóvember að veita fjórum verkefnum styrk upp á samtals 60 milljónir. Eitt verkefnið vakti sérstaka athygli, en Samtök um karlaathvarf fengu þrjár og hálfa milljón í styrk þrátt fyrir að matsnefnd hafi ekki talið samtökin réttu aðilana. RÚV greindi frá því að í umsögn matsnefndar hafi komið fram:„Við teljum þessa aðila þó ekki vera þá réttu til þess að framkvæma verkefnið sem felst meðal annars í að gerð verði rannsókn.“

Vísir fjallaði einnig um málið og í þeirri frétt var gefið til kynna að Samtök um karlaathvarf hefðu fengið styrkinn á kostnað Lögreglunnar á Suðurlandi, sem matsnefndin hafði mælt með.

Einar Steingrímsson stærðfræðingur telur að í fréttum sínum hafi bæði RÚV og Vísir gerst sek um hlutdrægni. Fréttirnar hafi verið skrifaðar til að þjóna ákveðnum pólitískum tilgangi.

Skammarlega léleg og hlutdræg

Einar segir í grein sem hann birti á Vísi í morgun: „Í báðum tilfellum er um að ræða skammarlega lélega og hlutdræga blaðamennsku og ómálefnalegar persónuárásir.“

Rökstyður Einar þessa fullyrðingu sína með því að benda á að báðir miðlar hafi kosið að birta ekki umsögn matsnefndar í heild sinni en af henni megi ráða að hún hafi sérstaklega beinst gegn Samtökum um karlaathvarf. Þar var fjallað um átta umsóknir. Flestar umsagnirnar voru fáorðar eða að hámarki 58 orð. Nefndin hafi þó séð ástæðu til að taka eina umsókn sérstaklega fyrir með 120 orðum – umsókn Samtaka um karlaathvarf.

Miðlarnir hafi svo sérstaklega fjallað um talsmenn samtakanna og mál þeirra sem hafi verið til umfjöllunar í fjölmiðlum, þá sérstaklega fjölda meiðyrðamála sem Huginn Þór Grétarsson hefur höfðað og svo um starfslok Kristins Sigurjónssonar, sem tók við styrknum, hjá Háskólanum í Reykjavík.

„Bæði RÚV og Vísir rifja svo upp fréttir um tvo af talsmönnum Karlaathvarfsins, sem erfitt er að sjá að komi þessum málum nokkuð við. Annars vegar um mann sem höfðaði mörg meiðyrðamál, þar sem RÚV nefnir að hann hafi tapað EINU þeirra, en nefnir EKKI öll þau sem hann vann, sem bendir jú til að góð ástæða hafi verið fyrir málshöfðun, auk þess sem þetta kemur fréttaefninu auðvitað ekkert við. Í hinu tilfellinu er um að ræða mann sem var rekinn úr vinnu fyrir ummæli í lokuðum Facebook-hóp, ummæli sem voru ansi miklu mildari en þær svívirðingar sem femínistar þessa lands komast upp með að viðhafa um karla án þess nokkrar athugasemdir séu gerðar, hvað þá að viðkomandi séu svipt vinnu sinni.“

Ekki fjallað með sama hætti um matsnefnd.

Miðlarnir hafi þó sleppt því að fjalla með sama hætti um meðlimi matsnefndarinnar en þar megi meðal annars finna starfsmann ráðuneytisins sem jafnframt sé í forsvari fyrir einn styrkþegann og lögmann sem hefur verið áminntur fyrir brot á siðareglum.

Einar segir tíma til kominn að fjölmiðlar hætti að stunda femínískan áróður þar sem einstaklingum og hreyfingum sem tengjast femínisma er hampað án gagnrýnnar umfjöllunar en samtímis fjallað á niðrandi hátt um allt sem tengist karlmönnum sem vilja rétta hlut karla.

„Bæði RÚV og Vísir hafa hér gert sig sek um hrikalega hlutdræga fréttamennsku. Það er augljóst, af því hvernig þetta er kynnt, í ljósi þeirra gagna sem báðir miðlar höfðu, og kynntu EKKI fyrir lesendum sínum, að hér var verið að matreiða fréttaefni til að þjóna ákveðnum pólitískum tilgangi, nefnilega trúarbrögðum íslenska stofnanafemínismans, sem grundvallast á hugmyndinni „konur góðar, karlar vondir“.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump