fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stefán Einar um vændismál Guðbrands – „Það eru menn sem virðast alltaf reiðubúnir að „kíkja í pakkann““

Ritstjórn DV
Föstudaginn 16. janúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn landsþekkti blaðamaður Morgunblaðsins, Stefán Einar Stefánsson, segir að mörgum spurningum sé ósvarað í vændismáli Guðbrands Einarssonar, fráfarandi þingmanns Viðreisnar, sem sagði af sér þingmennsku vegna yfirvofandi umfjöllunar Vísis um að hann hafi gert tilraun til vændiskaupa árið 2012. Atvikið átti sér stað í samkvæmi í fjölbýlishúsi sem Guðbrandur og fleiri komu í eftir að hafa setið þing ASÍ.

Stefán Einar var á þessum tíma formaður VR og hann segir í Facebook-færslu:

Hverjir voru í gleðskapnum?

„Allt er þetta mál hið ótrúlegasta og frétt Vísis svo þvæld að engin leið er að átta sig á raunverulegum málsatvikum? Lögreglan grípur Guðbrand Einarsson í íbúð þar sem haldinn var gleðskapur meðan á ASÍ-þingi stóð árið 2012. Lögreglan telur íbúðina tengda vændisstarfsemi. Guðbrandur neitar og ekkert verður úr málinu af hálfu yfirvalda. 13 árum síðar gefur Guðbrandur út yfirlýsingu um að hann hafi falast eftir þjónustu vændiskonu árið 2012 og að hann sjái mjög eftir því, jafnvel þótt ekkert hafi orðið af fyrirætlunum hans.

Augljóst er að þetta tengist umræddum gleðskap sem Guðbrandur segist hafa sótt ásamt öðrum þingfulltrúum á ASÍ þinginu. Hann segist hins vegar ekki muna hvert húsið sé, né heldur hverjir voru í gleðskapnum.

Einhverjir búa yfir þeirri vitneskju. Væntanlega trúnaðarmenn á vettvangi ASÍ sem sátu þingið og héldu í partýið óeftirminnilega.

Upplýsa verður hverjir það voru. Einhver eða einhverjir búa yfir þeirri vitneskju þótt hinn gleymni fyrrum þingmaður Viðreisnar geri það ekki.“

Stefán Einar upplýsir að hann hafi sjálfur sótt umrætt ASÍ-þing en hann hafi hins vegar ekki farið í samkvæmið umrædda. Hann skrifar:

„Ég sat þetta ASÍ-þing og get staðfest að ég fór ekki í þetta partý. Það hefði aldrei komið til. En ég man að á þinginu var fjallað um mansalsmál og ályktað gegn slíkum viðbjóði. Undarlegir eru menn, allsgáðir eða ekki, sem standa að yfirlýsingum sem þessum og stökkva svo beint í fang portkvenna. Það eru menn sem virðast alltaf reiðubúnir að „kíkja í pakkann“.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“