
Kanada og Kína styrkja tengslin og lækka tolla sem löndin hafa lagt á hvort annað. Þetta kemur fram í frétt BBC sem greinir frá því að Kína muni lækka tolla á kanadíska canola-olíu úr 85% niður í 15% fyrir 1. mars og að Kanada hafi samþykkt að flokka innfluttar bifreiðar frá Kína í hagkvæmasta tollflokk, 6,1%. Þetta var niðurstaða fundar leiðtoga þjóðanna, Xi Jinping og Mark Carney, sem fór fram í Peking.
Þetta þykja mikil tímamót þar sem spenna hefur ríkt í samskiptum ríkjanna undanfarin ár. BBC segir að þetta sé sömuleiðis mikill sigur fyrir Carney sem vinni nú hörðum höndum að því að Kanadamenn verði ekki eins háðir Bandaríkjunum og þeir hafa verið. Talið er samkomulagið geti haft í för með sér aukna fjárfestingu Kína í Kanada.
Carney sagði við blaðamenn eftir fundinn að samband Kanada og Kína hafi verið meira fyrirsjáanlegt undanfarna mánuði og að fundurinn í Peking hafi verið uppbyggilegur, þó að Kanada sé ekki sammála Kína í öllum málum. BBC segir að Carney hafi gefið til kynna að samkomulagið megi rekja til tollagleði Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Ólíkt samskiptunum við Bandaríkin hafi samskiptin við Kína einkennst af raunsæi og virðingu. Carney hafi dregið skýrar línur á fundinum í Peking varðandi mannréttindi, áhyggjur af afskiptum af kosningum og hvað varðar þörf á varnöglum.
„Við tökum heiminum eins og hann er – ekki eins og við óskum að hann sé,“ sagði Carney þegar blaðamenn spurðu um stöðu mannréttinda í Kína.
Talið er að þessi heimsókn Carney til Kína geti verið fordæmisgefandi fyrir aðrar þjóðir sem hafa orðið fyrir barðinu á tollagleði Bandaríkjanna.
Leiðtogi Kína, Xi, hefur undanfarið reynt að sýna fram á að Kína sé áreiðanlegur samstarfsaðili á alþjóðavettvangi og hvatt til raunsærrar nálgunar á milliríkjasamskiptin. Þannig geti allir unnið. Þessi nálgun virðist ætla að skila árangri því undanfarnar vikur hafa leiðtogar Suður-Kóreu og Írlands heimsótt Peking og reiknað er með því að forsætisráðherra Bretlands og kanslari Þýskalands geri það sama á næstu vikum.
Carney tók fram að heimurinn sé nú breyttur. Það skipti máli hvar Kanada staðsetur sig í nýrri heimsmynd því það muni móta framtíð þjóðarinnar næstu áratugina.
„Við erum meðvitaðir um það hvar við getum átt samstarf og hvar við erum ósammála,“ sagði Carney. Það liggi skýrt fyrir að þjóðirnar tvær eru ólíkar með ólík gildi. Samstarfið muni litast af því.
„Til þess að eiga í virku samstarfi þarf að eiga beint samtal. Við eigum ekki samtal með því að grípa upp gjallarhornið.“