fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Ætlaði að stela bíl en var illa brugðið þegar hann leit í skottið – Hringdi strax í lögreglu

Pressan
Föstudaginn 16. janúar 2026 11:30

Edward Gillespie er í slæmum málum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjófur sem hugðist stela bíl endaði á að hafa samband við lögreglu eftir að hann opnaði skottið í bílnum. Atvikið átti sér stað í bænum Barnstaple í Massachusetts í Bandaríkkjunum.

Maðurinn hugðist stela bílnum en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann opnaði þó skottið í leit að einhverjum verðmætum, en var illa brugðið þegar hann kom auga á nokkuð stóra pakkningu sem virtist innihalda kókaín.

Þjófurinn hafði samband við lögreglu þar sem hann lýsti því að hann hefði fundið pakkningu með kókaíni í vegkanti. Þegar hann var spurður frekar viðurkenndi hann að hafa fundið fíkniefnin í skotti bifreiðar sem hann hugðist stela.

Lögregla rakti bifreiðina til eiganda hennar, Edwards Gillespie, 62 ára íbúa á Nantucket, og fékk heimild til að fylgjast með bílnum. Þann 8. janúar náðu eftirlitsmyndavélar því þegar Gillespie opnaði skottið ítrekað, athugaði hólfið fyrir varadekk þar sem fíkniefnin höfðu verið geymd, gekk um órólegur á meðan hann talaði í síma og reif síðan í sundur dekkjahólfið.

Í kjölfarið var Gillespie handtekinn og ákærður fyrir stórfellt fíkniefnasmygl, meðal annars fyrir vörslu á meira en 200 grömmum af kókaíni í þeim tilgangi að dreifa. Hann hefur neitað sök og segir að hann hafi ekki vitað af fíkniefnum í bílnum.

Við húsleit á heimili Gillespie, með aðstoð bandarísku strandgæslunnar og fíkniefnalögreglunnar, DEA, fundu lögreglumenn frekari fíkniefni og reiðufé. Þar á meðal voru um 1,1 kíló af kókaíni, tæp 70 grömm af amfetamíntöflum og um 10.000 Bandaríkjadalir í reiðufé.

Maðurinn sem greindi lögreglu frá fíkniefnunum hefur ekki verið nafngreindur og óljóst er hvort hann muni sæta ákæru vegna tilraunarinnar til bílaþjófnaðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér