
Maður hefur verið handtekinn á Tenerife vegna innbrots á heimili fjölskyldu í Los Christanos í nóvember.
Canarian Weekly greinir frá.
Maðurinn braust inn í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi á meðan fjölskyldan var heima, par og tvær ungar dætur þeirra. Hann komst inn í íbúðina með því að klifra niður af þaki hússins með samanbundnum rúmlökum og troða sér inn um svefnherbergisglugga.
Húsmóðirin kom inn í herbergið og varð vör við innbrotsþjófinn. Hún lét fjölskylduna vita og þau læstu sig öll fjögur inni í öðru herbergi.
Í stað þess að flýja af vettvangi reyndi innbrotsþjófurinn að fara inn um læstar dyrnar þar sem fjölskyldan hafðist við. En það tókst ekki og hann gerði sér grein fyrir því að fjölskyldan var komin í samband við lögregluna. Fór hann því burtu en tók með sér tölvu og farsíma í eigu annarrar dótturinnar.
Við rannsókn málsins beindist athygli lögreglu um síðir að manni sem býr í höfuðborginni Santa Cruz og bar fjölskyldan kennsl á hann sem innbrotsþjófinn. Hefur hann nú verið handtekinn í þágu rannsóknar málsis.
Sami maður er einnig grunaður um innbrot í skóla í Santa Cruz.
Nánar má lesa um málið hér.