fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

17 ára stúlka grunuð um morð í Þýskalandi

Pressan
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 16:30

Castrop-Rauxel. Mynd: Wikipedia.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sautján ára stúlka er í haldi lögreglu grunuð um að hafa banað 17 ára kærasta sínum í bænum Castrop-Rauxel í Ruhr-héraðinu í Þýskalandi á miðvikudagskvöld.

Um kvöldmatarleytið gekk vegfarandi fram á unga manninn sem var að blæða út á gangstétt í bænum, og hafði samband við viðbragðsaðila sem komu fljótt á vettvang. Ungi maðurinn lést í haldi þeirra og reyndust allar tilraunir til að endurlífga hann árangurslausar. Lögreglumenn á vettvangi nutu áfallahjálpar í kjölfar atviksins.

Grunur féll fljótt á 17 ára kærustu látna mannsins. Samkvæmt heimildum Bild ber hún við neyðarvörn. Nánari málsatvik liggja ekki fyrir en lík unga mannsins verður krufið í dag. Stúlkan er í haldi lögreglu.

Bakgrunnur morðsins er óljós en íbúi í nágrenni við morðvettvanginn sagðist hafa heyrt öskur. Er hann gekk út fyrir  sá hann hins vegar ekkert grunsamlegt. Stuttu síðar varð hann var við blikkandi bláljós lögreglu- og sjúkrabíla sem komu á vettvang.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie