fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ólafur Ragnar varar við afleiðingum þess að taka Grænland með valdi – „Yrðu af stærðargráðu sem við höfum aldrei séð á okkar lífskeiði“ 

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir að ef Bandaríkin taka Grænland með valdi muni það hafa gríðarlegar afleiðingar, eftirmála sem við höfum aldrei áður séð í lifandi lífi. Þetta kom fram í Access Middle East hjá CNBC þar sem Ólafur ásamt fleirum ræddu heimsmálin.

Ólafur Ragnar er stofnandi og stjórnarformaður Hringborðs Norðurslóða, árlegrar ráðstefnu þar sem málefni Norðurslóða eru rædd. Hann segist ekki sammála Bandaríkjastjórn um að Kína og Rússar séu að auka áhrif sín á Norðurslóðum.

„Sem stendur stafar hvorki bein, skýr né augljós hætta frá Rússlandi eða Kína á norðurslóðum,“ sagði Ólafur sem segir Bandaríkin ýkja. Áhrifa Kína gæti einkum á yfirráðasvæði Rússa á norðurslóðum en þar stunda Kínverjar námuvinnslu, kanna möguleika til orkuvinnslu og möguleika á heræfingum. Fyrir utan þetta svæði, á yfirráðasvæðum Kanada, Bandaríkjanna og Norðurlanda, séu Kínverjar „ekki stór leikmaður“ og Rússar „eru ekki þarna“.

Ólafur segir að ef Donald Trump Bandaríkjaforseti vill styrkja stöðu Bandaríkjanna á norðurslóðum þá ætti hann að byrja heima. Bandaríkin séu þegar með landsvæði á norðurslóðum en hafi vanrækt að fjárfesta þar í innviðum á borð við hafnir og ísbrjóta. Þannig hafi Bandaríkin dregist aftur úr keppinautum sínum.

„Ef þú vilt auka viðveruna á norðurslóðum skaltu byrja heima fyrir,“ sagði Ólafur og benti á að enga stóra höfn er að finna á norðurslóðum Bandaríkjanna.

Ólafur segir óljóst hvað Bandaríkin telji sig græða á Grænlandi. Frá árinu 1951 hafi þjóðirnar tvær haft gildan varnarsamning sem geri Bandaríkjunum kleift að starfrækja herstöðvar á Grænlandi. Eins hafi leiðtogar Danmerkur lýst því yfir að þeir séu tilbúnir að starfa með Bandaríkjunum að því að auka viðveru bæði Nato og Bandaríkjanna þar. Eins hafa stjórnvöld í Grænlandi heimilað bandarískum fyrirtækjum að stunda námuvinnslu.

Trump hafi ekki skýrt þennan áhuga sinn nánar og því sé erfitt að átta sig á því hvað það er sem hann í raun vill. Ólafur telur að heimsýn forsetans sé mótuð af ferli hans í fasteignaviðskiptum.

„Fasteignagaurar hugsa í staðsetningum,“ sagði Ólafur og bætir við:

„Spurningin er hvað þeir ætla að gera við Grænland fyrir utan það eitt að stinga þar niður bandaríska fánanum og auka landsvæði sitt.“

Ólafur útilokar ekki að Bandaríkin muni taka Grænland með valdi en hann varar við því að það muni hafa fordæmalausa afleiðingar.

„Afleiðingarnar yrðu af stærðargráðu sem við höfum aldrei séð á okkar lífskeiði.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump