fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Starfsmaður Ford móðgaði Trump og gæti misst vinnuna – Síðan þá hafa magnaðir hlutir gerst

Pressan
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fertugur starfsmaður í verksmiðju Ford í Michigan í Bandaríkjunum móðgaði Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar hann kíkti þangað í heimsókn á þriðjudag.

Starfsmaðurinn sem um ræðir heitir TJ Sabula og er kvæntur tveggja barna faðir. Trump heimsótti verksmiðjuna á dögunum og sá Sabula sér leik á borði þegar Trump gekk fram hjá honum og kallaði að honum ókvæðisorð í tengslum við mál Jeffrey Epstein. „Verndari barnaníðinga,“ sagði Sabula úr um 20 metra fjarlægð frá forsetanum.

Sabula hefur nú verið sendur í leyfi meðan á rannsókn stendur og á hann á hættu að missa starf sitt í verksmiðjunni. Í viðtali við Washington Post kvaðst Sabula ekki sjá eftir gjörðum sínum en hann sagðist þó vissulega hafa áhyggjur af framtíð sinni ef hann missir vinnuna.

Söfnun var hrundið af stað á vefnum GoFundMe fyrir Sabula og er óhætt að segja að hún hafi gengið vel. Nú þegar hafa 480 þúsund dollarar, rúmar 60 milljónir króna, safnast fyrir kappann og ætti hann því ekki að þurfa að hafa áhyggjur af fjármálum sínum í bráð – hvað sem síðar verður.

Í frétt The Guardian kemur fram að stéttarfélag Sabula, UAW, hafi stutt við bak hans.

„Hann trúir á tjáningarfrelsi, sem er meginregla sem við styðjum heilshugar, og við stöndum með félagsmönnum okkar í að vernda rödd þeirra á vinnustaðnum,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér