
OnlyFans-stjörnum var vísað úr flugi American Airlines og þær handteknar fyrir að vera með óspektir um borð. Stjörnurnar höfðu keypt sér miða á almennt farrými en þegar þær komu um borð fengu þær sér sæti í fyrsta farrými og neituðu að færa sig. Fór því svo að kalla þurfti til lögreglu sem handtók konurnar tvær, sem voru verulega ölvaðar og með stæla.
Þær Sania Blanchard og Jordan Lantry fögnuðu því svo að myndbönd af atvikinu væru í dreifingu og hafa montað sig af handtökunni á samfélagsmiðlum.
„Það er verið að henda mér út því ég sat ekki í rétta fokking sætinu,“ öskraði Blanchard í einu myndbandinu. Lantry sá síma á lofti og ákvað því að gera sér lítið fyrir og skellti sér í split, lögreglumönnunum til lítillar gleði.
„Sorry ég þurfti bara að gera smá, smá jóga,“ flissaði hún þegar lögreglumenn kipptu henni aftur upp.
View this post on Instagram
Stöllurnar eru betur þekktar sem Sania Mallery og Lacey Jane, en báðar eru á fertugsaldri. Þær voru ítrekað beðnar um að setjast í rétt sæti áður en til lögreglu var kallað.
Þennan dag voru þær á leið til Miami til að halda upp á afmæli Lantry. Eins og sannir áhrifavaldar voru þær með símana á lofti til að taka myndbönd af ferðinni. Þegar þær stigu um borð voru þær spurðar hvort þær væru með brottfararspjald.
„Nei, við erum ekki með það. Við erum klárlega ölvaðar og þið nennið okkur ekki,“ sagði önnur þeirra í myndbandi sem birtist á Instagram.
Ekkert varð því úr Miami-ferðinni og eiga þær nú yfir höfði sér ákæru.
Virðast þær líta á þetta sem einhvers konar sigur því eftir að þeim var sleppt úr haldi birtu þær strax myndbönd á samfélagsmiðlum þar sem þær deildu því með fylgjendum hvað þær hefðu verið sniðugar.
„Fórum í frí en enduðum á skilorði. Við erum sekar um að vera GOÐSAGNAKENNDAR.“
Þær hafa nú látið prenta fangamyndirnar af sér á kaffibolla sem þær selja til fylgjenda.