

Fjölmiðlamaðurinn og uppistandarinn Stefán Einar Stefánsson olli uppþoti með brandara um rithöfundinn Nönnu Rögnvaldardóttur sem mörgum þótti með eindæmum ósmekklegur. Þar líkti hann Nönnu við færeyskan þjóðarrétt.
Sjá einnig: Hraunað yfir Stefán Einar vegna ummæla hans um Nönnu – „Þetta er viðurstyggð“
Stefán Einar tjáði sig um fjaðrafokið í færslu á Facebook á mánudaginn þar sem hann skrifaði gagnrýnina á herskáa vinstri-elítu. Þar vakti hann athygli á því að þessir gagnrýnendur væru litlu skárri en brandarinn sem þeir gagnrýndu og hefði Stefán Einar verið kallaður öllum ljótum nöfnum. Taldi Stefán Einar í færslunni að það væri óþarfi að eyða orðum að „svona barnaskap“
Sjá einnig: Stefán Einar svarar fyrir brandarann um Nönnu – „Það á ekki að eyða orðum á svona barnaskap“
Hann virðist þó hafa skipt um skoðun í framhaldinu. Undanfarinn sólarhring hefur hann verið að munnhöggvast við gagnrýnendur og hefur nú birt aðra færslu þar sem hann tekur saman sérvalin ummæli sem um hann hafa fallið í netheimum undanfarna daga.
„Eldar hafa geisað á netinu í kjölfar þess að ég sagði óviðeigandi brandara um megrunarleiðangur Nönnu Rögnvaldardóttur, matgæðings, í fyrsta þætti Þjóðmála á nýju ári.
Vinstri-elítan hefur gjörsamlega farið af límingunum, og ekki af væntumþykju í garð rithöfundarins, heldur vegna þess að hún trúir því að þarna hafi stóra tækifærið gefist til þess að koma höggi á mig. Þau eiga dálítið erfitt með að sætta sig við tilvist mína.“
Þrátt fyrir fullyrðingu um að gagnrýnendur séu ekki keyrðir áfram af væntumþykju í garð Nönnu beinir Stefán Einar næst máli sínu að færslu eftir uppgjafaprófessorinn Eirík Rögnvaldsson, en Eiríkur er stóri bróðir Nönnu.
„Einn af þeim sem telur sig knúinn til þess að fella dóm er hinn glaðlyndi Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus sem segir að ég sé meiri skítakarakter og ómerkingur en hann hafi áður talið (held að það sé ofsögum sagt – álitið hefur alltaf verið þetta enda hatar hann fólk úr mínum ranni).
Fjöldi fólks tekur undir með Eiríki, meðal annars Svandís Svavarsdóttir, hinn glæsti formaður VG sem kallar mig óþverra. Fólk óskar þess að ég stikni í helvíti, ýjar að því að ég sé á eiturlyfjum og svo vilja allnokkrir að ég hoppi upp í einn mikilvægasta hluta líkamans, sem ekki skal nefndur sérstaklega hér.“
Stefán segist láta sér þessi skrif í léttu rúmi liggja enda afhjúpi þau bara skinhelgi þeirra sem andskotast yfir orðbragði annarra með öðru verra. Segir hann umræðuna um brandarann eiga rætur að rekja til vók-menningarinnar, en réttlætisriddarar eigi í dag bágt þar sem vókið virkar ekki lengur.
Fjölmiðlamaðurinn ætlar áfram að deila skoðunum sínum og segja brandara, sama þótt sumum þyki þeir lélegir.
„Allt er það hluti af tjáningarfrelsinu og húmor verður að vera förunautur okkar í opinberri umræðu. Því ólíkt því sem Eiríkur Rögnvaldsson heldur fram þá er ekki bannað að hafa gaman.“
Síðan birtir Stefán Einar sérvalin ummæli sem um hann hafa fallið undir færslu Eiríks á Facebook og segir: „Ég er ekki hörundsár. Ég hef sjaldan lifað gleðilegri og skemmtilegra daga en einmitt nú“
Hér eru sérvöldu ummælin: