
Hinn fimmtugi Ashley MacIsaac segist hafa orðið fyrir verulegum óþægindum vegna þessa og misst verkefni vegna málsins. Tónleikum hans í Nova Scotia sem áttu að fara fram þann 19. desember síðastliðinn var aflýst eftir að skipuleggjendur fengu ábendingu um meint kynferðisbrot hans.
MacIsaac er þekktur þjóðlagatónlistarmaður og lagahöfundur og hefur hann meðal annars unnið til hinna virtu Juno-verðlauna í heimalandi sínu.
Í Google AI Overview var ranglega fullyrt að MacIsaac hefði verið dæmdur fyrir fjölda kynferðisbrota, þar á meðal kynferðislega áreitni, tælingu í gegnum netið, árás á konu og tilraun til árásar gegn barni. Þá var því ranglega haldið fram að MacIsaac væri á skrá yfir dæmda kynferðisbrotamenn í Kanada.
Í ljós kom að gervigreindin hafði safnað saman upplýsingum um einstakling sem bar sama eftirnafn og heimfærði þeir yfir á tónlistarmanninn.
„Þú ert settur í mjög óörugga stöðu og þetta eru ekkert annað en ærumeiðingar,“ segir MacIsaac í samtali við New York Post. „Ef lögmaður vill taka þetta mál að sér, án endurgjalds, þá myndi ég ekki slá höndinni á móti því. Því ég er ekki sá fyrsti og örugglega ekki sá síðasti sem lendir í þessu,“ segir hann.
Leitarniðurstöðurnar hafa nú verið leiðréttar og segir talsmaður Google að gervigreindin sé í stöðugri þróun og hún verði betri og betri með tímanum. Það sé alltaf leitt þegar svona mál komi upp.
Sipekne’katik First Nation, sem aflýsti tónleikum MacIsaac í desember, gaf út opinbera afsökunarbeiðni til tónlistarmannsins eftir að málið komst í hámæli. MacIsaac sagðist samþykkja afsökunarbeiðnina og hann vonist til að geta haldið tónleikana áður en langt um líður.