fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hún hvarf sporlaust – Myrti eiginmaðurinn hana og faldi líkið á fjölskyldubýlinu?

Pressan
Sunnudaginn 11. janúar 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dee Warner, 52 ára, hvarf 25. apríl 2021. Mál hennar er skoðað í þáttaröðinni People Magazine Investigates: Vanished in the Heartland og er þátturinn sýndur 12. janúar Investigation Discovery og Max.

Warner var frumkvöðull sem stjórnaði landbúnaði, áburðar- og flutningafyrirtækjum ásamt eiginmanni sínum í dreifbýli Michigan, og var hún þekkt fyrir að standa fast á sínu. Þrátt fyrir að vera yfirmaðurinn í vinnunni gat Warner, 52 ára gömul móðir og stjúpmóðir níu barna, líka verið fyndin og ástúðleg við fjölskylduna.

„Hún var alltaf kaldhæðin, hlæjandi og stríðin,,“ minnist frændi hennar, Parker Hardy.

En þann 23. apríl 2021, þegar Parker kom við á fjölskyldubýlinu í Tipton, Michigan, þar sem Dee bjó með eiginmanni sínum, Dale, 57 ára, og þá níu ára dóttur þeirra, Angalenu, tók hann eftir dapurlegu skapi frænku sinnar. „Hún var bara mjög öðruvísi þann dag. Búin á því, held ég, væri besta hugtakið.“

Þetta var í síðasta skipti sem Parker sá hana á lífi því tveimur dögum síðar hvarf Dee Warner sporlaust. Dóttir hennar frá fyrra hjónabandi, Rikkell Bock, var fyrst til að láta vita af hvarfinu þegar hún kom heim til móður sinnar í venjulegan sunnudagsmorgunverð þeirra og Dee var hvergi að finna. Hummer-bíllinn hennar og Cadillac Escalade voru enn á lóðinni, en ferðataska, ásamt krullujárni, snyrtitösku, símanum hennar og handtösku, var horfin.

Að sögn Dale, sem fullyrti að hann hefði síðast séð konu sína sofandi á sófanum snemma morguns, höfðu þau rifist kvöldið áður. Bock og aðrir fjölskyldumeðlimir segja að Dale hafi sagt þeim að hann hefði talið að Dee hefði hlaupið í burtu og skilið 40.000 dala giftingarhringinn sinn eftir á skrifborði sínu á skrifstofu býlisins, en spáði því að hún myndi snúa heim, rétt eins og hún gerði alltaf.

Sagan af dularfullu hvarfi Dee og meira en þriggja ára rannsókn sem leiddi til handtöku eiginmanns hennar og hneykslanlegrar uppgötvunar á líki hennar, sem var falið í áburðartanki á landi fjölskyldunnar, er sögð í þættinum Vanished in the Heartland.

Þann 22. nóvember 2023 var Dale ákærður fyrir morð og að hafa breytt sönnunargögnum í tengslum við dauða Dee með kyrkingu og höggi. Dale neitaði sök og er í haldi í fangelsi Lenawee-sýslu á meðan hann bíður réttarhalda sem eiga að hefjast 27. janúar.

Í undirbúningsmeðferð hafa lögmenn hans haldið því fram að hann hafi ekki myrt konu sína og að hann hafi ekki verið eini maðurinn á lóðinni þegar Dee hvarf. Búist er við að saksóknarar muni lýsa því hvernig hann skipulagði í smáatriðum hvernig hann ætti að farga líki konu sinnar.

„Hann hafði vel úthugsaða áætlun um að skapa hið fullkomna glæp og hann var mjög nálægt því að gera það,“ segir bróðir Dee, Gregg, sem vann með yfirvöldum og einkaspæjurum að því að finna meintan morðingja systur sinnar.

Dee og Dale

Landbúnaður var djúpstæður í fjölskyldu Dee, sem hafði ræktað frjósamt land í suðausturhluta Michigan frá árinu 1831, alið mjólkurkýr og ræktað hveiti, maís og soja. Dee lærði vinnusemi frá unga aldri.

Eftir menntaskóla vann Dee við fasteignir áður en hún, sem gift fjögurra barna móðir, fékk vinnu í sölu hjá áburðar- og landbúnaðarfyrirtæki í Blissfield, Michigan. Þar hitti hún Dale, sem var einnig giftur fjögurra barna faðir. Þrátt fyrir sögu um samkeppni bændafjölskyldna þeirra, kviknaði neistinn á milli þeirra.

Parið hóf ástarsamband áður en þau skildu að lokum við maka sína og giftust árið 2006. Ekki var langt liðið á hjónabandið þegar spenna kom fram í hjónabandinu. Þótt Dale væri heimakær maður sem kaus vinnu fremur en félagslíf, segir Gregg að „Dee hafi verið félagslynd.“

Dale Warner

Fjárhagsvandræði reyndu á samband þeirra, þar sem flutningafyrirtækið sem Dee rak dafnaði á meðan landbúnaðar- og áburðarfyrirtæki hjónanna áttu í erfiðleikum með að skila hagnaði. Fjölskylda hennar komst síðar að því að þann 23. apríl 2021, daginn sem Parker heimsótti frænku sína og sagði hana í dapurlegu skapi, lenti Dee í reiðilegum átökum við tvo starfsmenn flutningafyrirtækisins vegna fjárhagsmála. Hún var brjáluð yfir því að Dale skyldi ekki verja hana, segir dóttirin Bock, sem hélt því fram í yfirheyrsluað Dee væri tilbúin að skilja við Dale og selja sameiginlegar eignir þeirra.

Þegar Dee hvarf tveimur dögum síðar safnaði Gregg fljótt saman 40 manns til að leita að henni á landareigninni, án árangurs. Samkvæmt fjölskyldu Dee gaf Dale, sem virtist rólegur og uppgefinn eftir hvarf eiginkonu sinnar, í skyn að Dee gæti hafa hlaupið á brott með öðrum manni, en sumir fjölskyldumeðlimir grunuðu að hún hefði tekið eigið líf. Grunur fjölskyldu hennar jókst þegar Gregg fór að trúa því að Dale hefði flutt eignir frá flutningafyrirtæki Dee yfir í nýtt fyrirtæki sem hann stofnaði eftir að hún hvarf með því að falsa undirskrift sína á skjöl.

Um sex mánuðum eftir handtöku Dale fékk Gregg símtal frá rannsóknarlögreglumanni sem sagði honum að síðasta þekkta staðsetning Dee hefði verið rakin með rafrænum gögnum í hlöðu á landareigninni. Gregg mundi eftir að hafa séð Dale í sama hlöðu, þar sem hann var að mála ryðgaðan áburðartank, nokkrum dögum eftir að Dee hvarf. „Hann gæti hafa skorið gat á tankinn, troðið líki hennar þar inn og soðið hann saman,“ velti Gregg fyrir sér við konu sína. „Og þess vegna málaði hann tankinn.“

Tankurinn sem lík Dee fannst í

Vikum eftir að Gregg deildi kenningu sinni með yfirvöldum færði rannsóknarlögreglumaður óvæntar fréttir í formi röntgenmyndar af vel varðveittu líki inni í tankinum. Tannlæknagögn voru notuð til að bera kennsl á líkið sem lík Dee Warner.

Eftir þriggja og hálfs árs bið gat fjölskylda Dee loksins heiðrað hana með virðulegri útför 30. ágúst 2024. Réttlætinu er þó enn ekki fullnægt, þar sem Dale hefur ekki hlotið dóm enn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér