fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Lögreglumenn trúðu ekki eigin augum – Eins og atriði í hryllingsmynd

Pressan
Laugardaginn 10. janúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bein og höfuðkúpur sem sáust í aftursæti bíls nálægt yfirgefnum kirkjugarði í útjaðri bandarísku borgarinnar Philadelphiu leiddu lögreglu að kjallara sem var fullur af líkamsleifum í mismunandi ástandi.

Eigandi hússins er hinn 34 ára gamli Jonathan Christ Gerlach og er hann grunaður um að hafa brotist inn í að minnsta kosti 26 grafhvelfingar í yfirgefnum kirkjugarði í útjaðri borgarinnar frá því í byrjun nóvember. Jonathan var handtekinn á þriðjudag eftir rannsókn lögreglu.

Í frétt AP kemur fram að óskemmtileg sjón hafi mætt lögreglu þegar hún gerði húsleit á heimili hans, en í kjallaranum fundust um hundrað höfuðkúpur, rotnandi hendur og fætur og að minnsta kosti tvö heil lík sem höfðu varðveist ágætlega í grafhvelfingunum.

„Þetta var í ýmsu ástandi. Sumt hékk, ef svo má að orði komast. Sumt var sett saman, annað voru bara höfuðkúpur á hillu,“ segir Tanner Rouse saksóknari í málinu.

„Það má í raun segja að lögreglumenn hafi gengið inn í hryllingsmynd. Þetta var ótrúleg sjón,” segir Rouse í samtali við WPVI. Talið er að sumar líkamsleifarnar séu hátt í 200 ára gamlar en aðrar mun nýrri. Til marks um það sást gangráður á einu líkinu.

Kirkjugarðurinn sem um ræðir var stofnaður árið 1855 og er talið að þar séu um 150 þúsund grafir. Ekki er talið útilokað að Jonathan hafi athafnað sig í öðrum kirkjugörðum.

Jonathan var handtekinn eftir umfangsmikla rannsókn lögreglu, en í ljós kom að ákveðinn bíll hafði sést á eftirlitsmyndavélum nærri kirkjugarðinum á þeim tímum sem innbrotin áttu sér stað. Lögreglumenn gripu Jonathan glóðvolgan í vikunni þegar hann gekk aftur að bíl sínum með kúbein í hönd og poka sem innihélt líkamsleifar tveggja ungra barna og þrjár höfuðkúpur.

Rouse sagði við blaðamenn að ekki sé vitað hvað Jonathan gekk til með þessu, en hann situr í gæsluvarðhaldi og á yfir höfði sér fangelsisdóm vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér