fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Pressan

Bandaríkjaher gerði árás á Venesúela og handtók Maduro

Pressan
Laugardaginn 3. janúar 2026 09:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fréttamenn CNN urðu vitni að því þegar sprengjur féllu á Caracas, höfuðborg Venesúela, rétt fyrir klukkan sex í morgun.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað varað við því að Bandaríkin væru reiðubúin að ráðast í aðgerðir til að berjast gegn meintum fíkniefnasöluhópum í Venesúela og hefur ekki farið leynt með það að hann vilji koma Maduro frá völdum.

Rétt í þessu lýsti Trump því yfir að herinn hafi handsamað bæði Maduro og eiginkonu hans. Þau séu ekki lengur í Venesúela. Boðað hefur verið til blaðamannafundar síðar í dag við heimili Trump í Flórída, Mar-a-Lago.

Það var í byrjun desember sem Trump mun hafa veitt Maduro afarkosti og hvatt hann til að flýja land ásamt eiginkonu sinni. Ellegar myndi hann mæta afleiðingum.

Sjá einnig: Trump segir Maduro og eiginkonu hans að yfirgefa Venesúela strax

Íbúar í strandborginni Higuerote segja í samtali við CNN að þeir hafi vaknað í morgun við það sem þeir töldu í fyrstu vera flugelda. Himininn hafi svo orðið rauður.

„Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað eins og flugeldar. Síðan kom önnur sprenging og jörðin skalf. Þá áttaði ég mig á því að þetta væri eitthvað alvarlegra. Nágrannar mínir hlupu öskrandi út á götu svo ég fór út og sá þá þennan stóra reykvegg. Himininn varð skyndilega rauður og nokkrum sekúndum síðar heyrðist mikill hávaði. Svo kom þögn í um 20 mínútur og svo heyrðum við aftur í flugvélunum og svo aftur tvær sprengingar. Allt skalf eftir þær.“

Yfirvöld í Venesúela sögðu í yfirlýsingu nú í morgun að markmið Bandaríkjahers sé sölsa undir sig auðlindir landsins, þá einkum olíuna.

Maduro hefur verið við völd í Venesúela frá árinu 2013 en undir stjórn hans hefur um fjórðungur íbúa flúið land. Hann þykir mikill harðstjóri og hefur barið niður mótmæli með lögregluvaldi og hefur verið sakaður um að hagræða lýðræðislegum kosningum sér í hag.

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, María Corina Machado, hlaut friðarverðlaun Nóbels í ár fyrir baráttu sína gegn Maduro. Nóbelsráðið sagði í umsögn sinni að Venesúela hefði þróast úr lýðræðislegu og velmegandi landi í grimmt einræðisríki þar sem ríki bæði efnahags- og mannúðarkreppa og því þurfi gífurlegt hugrekki til að berjast gegn valdhöfum. Machado telur sig hafa hauk í horni í Bandaríkjunum og tileinkaði Trump friðarverðlaunin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök
Pressan
Í gær

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Netanyahu reynir að sanna að hann sé hvorki dauður né gervigreind – Netverjar eru ekki sannfærðir

Netanyahu reynir að sanna að hann sé hvorki dauður né gervigreind – Netverjar eru ekki sannfærðir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump úthúðar „bandamönnum“ í NATO og segist enga hjálp þurfa lengur – „VIÐ ÞURFTUM HANA ALDREI!“

Trump úthúðar „bandamönnum“ í NATO og segist enga hjálp þurfa lengur – „VIÐ ÞURFTUM HANA ALDREI!“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Heilahimnubólga veldur ótta í háskólabæ – Tveir látnir og ellefu alvarlega veikir

Heilahimnubólga veldur ótta í háskólabæ – Tveir látnir og ellefu alvarlega veikir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fékk matareitrun í typpið eftir ástarleik með eiginkonunni

Fékk matareitrun í typpið eftir ástarleik með eiginkonunni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta er besta landið fyrir ellilífeyrisþega – Hægt að lifa góðu lífi fyrir 260.000 á mánuði

Þetta er besta landið fyrir ellilífeyrisþega – Hægt að lifa góðu lífi fyrir 260.000 á mánuði