fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Fókus

O (Hringur) hlaut dómnefndarverðlaunin í París

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 22. desember 2025 12:23

Hluti af hópnum sem stendur að O.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýverið lauk tuttugustu og þriðju alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Festival International Signes de Nuit  í París og þar hlaut O (Hringur), dómnefndarverðlaunin.

„Myndin býður upp á stórfenglega og þroskaða frásögn, drifna áfram af magnaðri frammistöðu leikara í sögu um örvæntingu, einsemd og oft ósýnilegan sársauka í heimi nútímans. Með ótrúlegri næmni fangar leikstjórinn öflug augnablik og sjónrænt sláandi myndir úr innra heimi persónunnar og skapar djúpa, samúðarfulla mynd af tilfinningalegri flækju mannlegrar tilveru,“ segir í umsögn dómnefndar.

Myndin var frumsýnd  á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og hefur síðan þá unnið tuttugu og ein kvikmyndaverðlaun.

O (Hringur) er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur.

O (Hringur) er með Ingvar E. Sigurðsson í aðalhlutverki, Rúnar Rúnarssonar er leikstjóri og Heather Millard framleiðandi.

„Við erum svo stolt af öllu því frábæra fólki sem vann við þessa mynd og gerði að veruleika. Þetta hefur verið gott ár fyrir íslenskar kvikmyndir, en frábærar myndir hafa verið sýndar og vakið lukk, hér heima sem og erlendis.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Konan í Coldplay-hneykslinu fræga stígur fram til að hreinsa nafn sitt – „Hann var ekki maðurinn sem hann þóttist vera“

Konan í Coldplay-hneykslinu fræga stígur fram til að hreinsa nafn sitt – „Hann var ekki maðurinn sem hann þóttist vera“
Fókus
Í gær

Marvel-leikarinn biðst afsökunar á ummælum sem sármóðguðu aðdáendur síðasta sumar – „Ég biðst innilega afsökunar“

Marvel-leikarinn biðst afsökunar á ummælum sem sármóðguðu aðdáendur síðasta sumar – „Ég biðst innilega afsökunar“