
Hossam Hassan, landsliðsþjálfari Egyptalands, hefur engar áhyggjur af Mohamed Salah fyrir Afríkukeppnina, en Egyptar hefja leik í dag.
Mikið fjaðrafok hefur verið í kringum Salah eftir að hann hjólaði í Arne Slot og Liverpool eftir bekkjarsetu á tímabilinu. Hann var settur utan hóps en tekinn inn á ný áður en hann hélt í Afríkukeppnina.
„Andinn hjá Salah á æfingum er mjög góður, eins og hann sé rétt að byrja með landsliðinu. Ég tel að hann eigi eftir að eiga frábært mót,“ sagði Hassan og bætti við að hann líti ekki á atburðina í Liverpool sem vandamál.
Þrátt fyrir það halda sögur um möguleg félagaskipti áfram, en Salah er sterklega orðaður við Sádi-Arabíu. Hann er samningsbundinn Liverpool til 2027.