

Enzo Maresca, stjóri Chelsea, vildi lítið gefa upp er hann spurður út í mögulegan nýjan samning í gær.
Maresca og hans menn spila við Newcastle í dag en hann hefur gert flotta hluti með liðið eftir að hafa tekið við í fyrra.
Maresca virtist gagnrýna stjórn Chelsea opinberlega nýlega og hefur í kjölfarið verið orðaður við Manchester City.
,,Ef félagið býður mér nýjan samning? Það er undir félaginu komið hvort ég eigi það skilið,“ sagði Maresca.