fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Skólameistarinn sem deildi við Ingu Sæland um strigaskó ekki endurskipaður – Sendir Flokki fólksins kaldar kveðjur – „Ævistarfi mínu finnst mér lítill sómi sýndur“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. desember 2025 13:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, verður ekki endurskipaður í starf skólastjóra Borgarholtsskóla. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Ársæll sendi starfsfólki skólans fyrr í dag þar sem hann sendir Flokki fólksins kaldar kveðjur, ekki síst vegna þess að hann á tvö ár í eftirlaun þegar skipunartími hans rennur út en hann er fæddur árið 1961.

Eins og frægt varð lenti Ársæll í hatrammri deilu við Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálamálaráðherra og formann Flokks fólksins, í byrjun árs útaf týndu skópari barnabarns ráðherrans. Átti ráðherrann að hafa hellt sér yfir Ársæl í símtali og gengu ásakanirnar á víxl. Meðal annars var ýjað að því að Inga hefði hótað Ársæli því að hún hefði ítök innan lögreglunnar.

Talsverður stormur myndaðist vegna málsins en að endingu baðst Inga afsökunar á símtalinu og sagði það hafa verið mistök. Hún þvertók hins vegar fyrir að hafa haft í hótunum við Ársæl.

Í tölvupóstinum sem Ársæll sendi á starfsmenn skólans fer skólastjórinn yfir málið og ljóst er að hann telur að skóparsmálið skýra ákvörðun menntamálaráðherra, Guðmunds Inga Kristinssonar. Hann bendir á að hann hafi aldrei verið áminntur né fengið ákúrur frá ráðherra á sínum starfsferli sem skólameistari og ætíð haldið rekstri skólans innan fjárlagaheimilda.

Ljóst er að starfsferill Ársæll hjá skólanum er að enda með hvelli en það sama gilti um þegar hann var skipaður í embættið árið 2016. Þá var hann sagður hafa verið skipaður vegna tengsla sinna við þáverandi menntamálaráðherra, Illuga Gunnarsson, þvert á álit skólanefndar skólans sem taldi annan umsækjanda hæfari. Varð það meðal annars til þess að Ragnar Þór Pétursson, fulltrúi menntamálaráðherra í skólanefndinni, sagði sig úr nefndinni.

„Ég fullyrði þess vegna að það sé nánast útilokað að Ársæll hafi verið valinn af faglegum forsendum,“ lét Ragnar hafa eftir sér á sínum tíma.

Hér má lesa póst Ársæls í heild sinni:

Kæra samstarfsfólk

Það er með miklum trega og með sorg í hjarta að ég skrifa ykkur þennan tölvupóst til að upplýsa ykkur um að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra hefur látið birta mér að hann óski ekki eftir kröftum mínum sem skólameistara. Þvert á allar hefðir og í ljósi þess að undanfarið hefur ráðherra endurskipað aðra skólameistara og nýlega ráðið í lausar stöður er augljóst hvað liggur að baki ákvörðun Guðmundar Inga og Flokks fólksins. Ég hef aldrei verið áminntur í starfi eða fengið ákúrur frá ráðherra menntamála þá áratugi sem ég hef starfað sem skólameistari og ætíð haldið rekstri skólans innan fjárlagaheimilda.

Skipunartími minn rennur út um mitt næsta ár eða tveimur árum áður en ég kemst á eftirlaunaaldur og eru þá rétt 40 ár síðan ég brautskráðist sem kennari úr Kennaraháskóla Íslands. Ævistarfi mínu finnst mér lítill sómi sýndur og þakklætið rýrt en ráðherra afhenti mér ekki sjálfur tilkynninguna heldur fékk starfsfólk sitt til að sjá um það. Skýring þeirra á þessari ákvörðun ráðherra er sú að ráðherra hefði heimild til að gera þetta.
Ég er nú í þeirri skrýtnu stöðu að vera forstöðumaður fyrir ríkisstofnun þar sem ráðherra hefur í raun lýst yfir vantrausti á störf mín og ég því nánast umboðslaus.

Sjálfur hefði ég kosið að starfa áfram við skólann við að efla okkar góða starf og styrkja enda margar áskoranir framundan. Vinnustaðurinn okkar er frábær, starfsandinn góður og fagmennska í fyrirrúmi. Þykir mér afar leitt að vera hent frá borði með þessum hætti. Á allri minni ævi hef ég ekki kynnst betri vinnustað en nú skilja leiðir.

Bestu kveðjur

Ársæll

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump