fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Sakamál: Áttræð amma fékk óþægilega heimsókn frá lögreglunni

Pressan
Laugardaginn 29. nóvember 2025 21:30

Mary Jo Baily. Youtube-skjáskot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mary Jo Baily var 81 árs gömul þegar lögregla með búkmyndavél bankaði upp á hjá henni að heimili hennar í Arizona. Þetta var í nóvember árið 2023. Það sem meira var, þá sagðist lögreglumaðurinn vera með handtökuskipun á hana vegna morðs sem var framið næstum því 40 árum áður. Mary Jo gamla neitaði sök og gerir það enn þann dag í dag. Fyrstu viðbrögð Mary Jo voru þau að benda lögreglumanninum á að hún þyrfti að sinna ýmsum erindum þennan daginn og hefði bara ekki tíma. En lögreglumaðurinn benti henni á að hún myndi ekki geta sinnt þessum erindum. Hún átti framundan langa lögregluyfirheyrslu.

Flókin ástarmál eru vanalega ekki vandamál hjá öldruðu fólki þó að á slíku geti verið undantekningar. En sá sem hefur myrt fyrir ástina þarf fyrr eða síðar að taka afleiðingum gjörða sinna. Lögreglan sakaði Mary Jo um að hafa myrt konu vegna afbrýðisemi árið 1985.

Í desember árið 1985 var 45 ára gömul kona, Yvonne Menke, skotin til bana fyrir utan heimili sitt í Wisconsin. Yvoenne hafði farið út til að hita upp bílinn sinn en inni íbúðinni heyrði dóttir hennar hljóð sem líktust skothvellum. Er hún fór að aðgæta um þetta sá hún móður sína liggja í hnipri fyrir neðan húströppurnar og ókunnuga veru flýja frá vettvangi.

Er lögregla fór að rannsaka málið kom á daginn að maður að nafni Jack Owen, sem nú er látinn, hafði átti í ástarsambandi við báðar konurnar, þær Yvonne og Mary Jo, í um átta ár. Milli kvennanna tveggja var mikið hatur vegna þessa ástarþríhyrnings. Jack sagði við lögreglu árið 1985 að hann hefði verið búinn að slíta endanlega sambandinu við Mary Jo þegar Yvonne var skotin og hafði hvorki heyrt hana né séð í margar vikur.

Það sem lögregla hafði á að byggja á sínum tíma voru viðtöl við aðstandandendur hinnar látnu, svo og við Mary Jo sjálfa, fótspor í snjónum eftir kuldaskó og skot úr 22 kalibera skammbyssu. Mary Jo viðurkenndi að hún hefði átt slíkt skotvopn en sagði að ónefndur kærasti hennar hefði selt það.

Málið endaði sem svokallað „cold case,“ fór í bunkann yfir óleyst mál, en eitthvað varð til þess að lögreglumenn ákváðu að rannsaka það upp á nýtt árið 2023. Þó voru engin ný sönnunargögn komin fram í málinu en rannsóknarmenn ákváðu að fara betur yfir eldri gögn.

Atriði eins og morðástæða og fótsporin í snjóum voru helstu sönnunargögn í málinu og svo fór að Mary Jo var dregin fyrir dóm árið 2024, sakfelld og dæmd í ævilangt fangelsi með möguleika á reynslulausn eftir 20 ár. Þegar sá dagur rennur upp verður hún orðin 101 árs ef hún lifir svo lengi.

Í myndbandi hér að neðan er málið rifjað upp auk þess sem spilaðir eru hlutar úr lögregluyfirheyrslu yfir Mary Jo Baily.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér