

Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, er afdráttarlaus í skoðunum sínum og lætur þær flakka í Spjallinu við Frosta Logason. Hann starfaði lengi hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra þar sem hann tókst meðal annars við Baugsmálið umdeilda og síðar rak hann mörg af stærstu bankahrunsmálunum fyrir Hæstarétti. Hann ræðir umdeild ummæli, áminningar, starfslok og hvernig hann horfir á þróun Evrópu með tilliti til sívaxandi vandamála tengdum hröðum innflytjendastraumi.
Helgi Magnús segir að símhlustanir sérstaks saksóknara í eftirmálum hrunsins hafi verið glórulausar og á mörkum hins siðlausa. Hann segir þær engu hafa skilað sem nýttist við málarekstur gegn meintum brotamönnum. Þá bendir hann á að aldrei hafi verið notast við símhleranir í efnahagsbrotamálum fram að þessu þar sem menn töldu það bæði ósiðlegt og í raun ekki leyfilegt þar sem refsirammi slíkra brota rúmaði ekki slíkar heimildir.
„Ég kenni þekkingarleysi og reynsluleysi um hvernig var búið utan um þessar rannsóknir, allar þessar símhlustanir sem voru settar í gang. Algjörlega glórulaus vitleysa, fyrir utan hvað þetta kostaði nú mikinn tíma að hanga yfir því að hlusta á fólk tala við konuna sína um hvað eigi að vera í kvöldmatinn, tveim, þrem, fjórum, fimm árum eftir að brot voru framin í tengslum við það að þeir fóru í yfirheyrslur hjá lögreglu. Sem er náttúrulega beiting á hlustunum sem er svona alla vega ekki mjög siðleg að mínu viti að einhvern veginn reyna að lokka út af mönnum einhver samtöl.“
Helgi Magnús segir að megnið af samtölunum sem hleruð voru hafi viðkomandi átt við lögmenn sína. Þeim samtölum hafi þurft að eyða tafarlaust og helst hefði átt að þekkja númer lögmanna svo aldrei væri hlustað á þau samtöl. Komið hafi í ljós að einhver þeirra símtala hafi enn verið til í hljóðrita mörgum árum seinna þegar lögmenn fengu að fara í gegnum hljóðfælana.
„Þessar símhlustanir allar skiluðu ekki neinum sönnunargögnum sem skiptu nokkru, sem er náttúrulega forsenda fyrir símhlustunum, að það sé líklegt að það skili einhverjum sönnunargögnum sem skipti máli í málinu. Ég þekki ekki einasta mál sem skipti neinu máli, sem sönnunargagn. Þessi mál sem ég flutti var enginn framburður sem hafði einhverja þýðingu fyrir niðurstöðu málsins. Svo sitjum við uppi með ákveðið traustbrest í kringum lögregluna og þessar símhlustanir. Við sitjum með Hæstaréttardóma sem komast að niðurstöðu, sem er kannski ekki mjög rökrétt að mínu viti, að það megi ekki hlusta á síma manna sem hafa fengið stöðu sakbornings. Því það átti náttúrulega við um allar þessar símhlustanir. Menn voru kallaðir í yfirheyrslu og þeir voru sakaðir um einhverja háttsemi. Svo fóru þeir út og voru byrjaðir að ræða um símhlustanir og þeir hringdu í einhvern. Hugmyndin var sú að þeir myndu hringja í meðseka og fara að ræða brot sín eða eitthvað. Kæmu fram einhverjar játningar í símhlustunum. Það hafði aldrei verið hlustað í síma hjá efnahagsbrotadeild í tengslum við rannsóknir efnahagsbrota.“
Segir Helgi Magnús það ekki hafa verið vegna þess að efnahagsbrot væru svo lítil, heldur það ekki talið heimilt, siðlegt eða eðlilegt. Á þeim tíma hafi refsiramminn verið átta ár eða ríkir almanna- eða einkahagsmunir krafist þess, símhlustanir voru allar heimilaðar á grundvelli ríkra almannahagsmuna, sem Helgi Magnús segir:
„mjög loðið og teygjanlegt hugtak. Þegar þú ert að tala um skerðingu mannréttinda, þá viltu náttúrulega hafa það konkret, sem er orðið í lögum núna. Það er búið að breyta lögum í framhaldi af þessu öllu saman. Þú vilt hafa allar skerðingar á réttindum manna í lögum skýrar og afdráttarlausar en ekki háðar einhverju mati eða stemningu í samfélaginu.“
Helgi Magnús er afdráttarlaus í skoðunum sínum í innflytjendamálum. Hann ræðir einnig samskipti sín við síbrotamanninn sýrlenska Mohamad Khourani.
„Þegar hann sá mig í dyrunum þá öskraði hann á mig: „I Will Kill You.“ Ég var nú bara að vona að hann réðist á mig, þá gæti ég bara lumbrað á honum. Ef ég segi bara alveg eins og er. Ég ætlaði nú bara að láta hann finna fyrir því ég var bara kominn með nóg af þessu kjaftæði. Fyrirgefðu frönskuna mína. En svo áttum við bara samtal og hann fór að væla yfir að allir væru vondir við hann og eitthvað kjaftæði. Ég sagði við að drulla sér bara heim til Sýrlands ef þú heldur að þú hafir það betra þar. Ég hef engan sérstakan áhuga á að eyða skattpeningunum í að halda þér uppi hérna eins og þú hagar þér. Lét hann bara heyra það og hann var með einhvern svona skæting og svo bara rak ég hann út.“
Segir Helgi Magnús að þarna hafi lögregla sem hringt var í verið kominn á staðinn og hafi fylgt Khourani út.
Hann segist hafa eftir áreiðanlegum heimildum, þær upplýsingar að fjölskyldusameining sem íslenskar konur tóku þátt í að því er virðist með því að „múta landamæravörðum í Egyptalandi til að koma fólki frá Gasa yfir landamærin, sem var búið að fallast á einhverja fjölskyldusameiningu hér á Íslandi, að í þeim hópi hafi Ísraelar varað við. Þeir fengu listann, ísraelska leyniþjónustan, og þeir vöruðu við einhverjum 10-15 í þessum hópi. Það bara var gefið til kynna að þeir tengdust bara einhverju hryðjuverkaslamsemi eða einhverju slíku. Og ég get alveg sagt þér það, þeir vita hvaða skónúmer þú notar. Ísraelska leyniþjónustan er sú öflugasta í heimi og hún veit allt. Og hún veit allt um þessa gæja.
Helgi Magnús vísar til skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra 2019 um skipulagða brotastarfsemi, þar sem hann segir að komið hafi fram að hópur af múslimskum karlmönnum hafi komið hingað vegna þess að þeir væru ofsóttir fyrir kynhneigð sína í heimalandinu. Stuttu eftir komu hingað til lands hafi þeir brotið gegn konum hér á landi,
„Þannig að það blasti nú fyrir mér, þó ég sé ekki sérfræðingur í hinsegin fræðum, að þeir væru nú kannski ekki samkynhneigðir fyrst þeir völdu þennan markhóp. Þannig að þetta var svona bakgrunnurinn að því sem ég sagði. Svo hleypir fólk upp, meira að segja núna, núverandi utanríkisráðherra, ég væri einhver Trumpisti og á móti samkynhneigðum og alls kyns, snúa þessu alveg á hvolf. Því að fólk hþykist hafa leyfi til þess að leggja manni orð í munn. Þegar að menn eru farnir að leggjast á skeljarnar á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn, einhverja risa íslamsk bænastund. Af hverju heldurðu að þeir séu að því? Er það bara af því að þeir eru svona hógværir í sinni trú? Nei þeir eru að troða þessu, þetta er af sömu ástæðu og hundar míga út um allt á staura, þeir eru að merkja sér svæði. Það er verið að vera að ýta þessu yfir það sem fyrir er. Þetta snýst um menningarbyltingu í rauninni.“
Helgi Magnús segir að hægt sé að finna fullt af fólki sem segi að tölfræði í innflytjendamálum sé rasísk.
„Við tökum ekki mark á tölfræði af því að ég þekki hann Abdullah í næsta húsi, þetta er bara fínn maður, þá hljóta bara allir hinir 1000 milljónirnar að vera líka fínir. En því miður er það ekki þannig. Og ef við metum bara áhættu á ákveðinni háttsemi, sérðu hvað er að gerast í heiminum og hvað er búið að gerast hér. Það er búið að fremja rúmlega 47.000 hryðjuverk í heiminum af völdum íslamista frá 11. september 2001. Og við erum að heyra næstum því daglega, ef við leggjum eyrun vel við, einhver ódæðisverk þar sem menn eru öskrandi Allahu Akbar einhvers staðar, stingandi fólk eða skjótandi eða sprengjandi. Og fólk bara neitar að tengja þetta trúnni. Þeir eru að tengja þetta trúnni. Þeir eru að reyna að sannfæra okkur um það að þetta hafi eitthvað með trúna að gera. Það er enginn að tala um það að við ætlum að vera að halda múslimum, gera þá ábyrga fyrir öllum morðunum og nauðgununum sem að Múhameð stóð fyrir.
Við erum bara að segja, í dag viljum við siðbót, við viljum nútímann hérna og við viljum að þið takið þátt í þjóðfélagi sem er það besta í heiminum. Evrópa er, evrópska samfélagið, gildin og allt þetta sem við höfum lagt heiminum til er það besta sem til er í dag.“
Helgi Magnús segir Ísland best í heimi þegar kemur að orkumálum, landið sé með 85% af orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum.
„Og við erum að væla alla daga yfir því að við stöndum okkur ekki nógu vel. Við eigum að opna veskið. Þú getur haldið svona áfram. Jafnrétti kynjanna, við erum á toppnum á öllum mælikvörðum, alþjóðlegum mælikvörðum, í mörg, bara áratugi held ég bara. Og það er verið að væla um það að konur séu kúgaðar hérna í einhverju feðraveldi. Þú veist, hvaða djöfulsins væl er þetta?“