fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Morðið á Charlie Kirk: Skotvopnið fundið og leitað að ungum byssumanni

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 11. september 2025 14:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregluyfirvöld í Utah telja sig hafa fundið skotvopnið sem notað var til að ráða hægrimanninn og áhrifavaldinn Charlie Kirk af dögum í gær.

Bea Mason, yfirmaður öryggismála í Utah-ríki, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í dag.

Hann sagði að lögregla hefði náð nokkrum mikilvægum áföngum við rannsókn málsins og lögregla væri til dæmis með myndir af hinum grunaða. Hann sagði þó ekki tímabært að birta þær opinberlega að svo stöddu.

Mason sagði að lögreglu hefði tekist að rekja ferðir hins grunaða frá því að hann kom í Utah Valley-háskólann klukkan 11:52 í gærmorgun að staðartíma.

Hinn grunaði, sem er sagður vera á „háskólaaldri“, fór upp á þak byggingar beint á móti sviðinu þar sem Charlie hélt fyrirlestur og kom sér þar fyrir með öflugt skotvopn.

Eftir skotárásina er hinn grunaði sagður hafa stokkið af þaki byggingarinnar og flúið vettvang. Skotvopnið sem talið er að hafi verið notað í árásinni er sagt hafa fundist í skóglendi skammt frá skólanum.

„Við erum með góð myndskeið af þessum einstaklingi en við ætlum ekki að birta þau á þessu stigi,“ sagði Mason.

„Við erum að vinna með ákveðna tækni og aðferðir til að bera kennsl á þennan einstakling,” sagði hann og bætti við að leitað yrði til fjölmiðla ef ekki tekst að bera kennsl á viðkomandi. „En við erum bjartsýn eins og staðan er núna.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“