fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Húsfélag við Hallgerðargötu í hart eftir að borgin opnaði óvænt íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í húsinu – Ungbarnaleikskóli á sama stað

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. júní 2025 21:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Húsfélag stendur nú í stappi við borgina út af íbúðakjarna sem stendur til að reka í húsinu. Um er að ræða stórt fjölbýlishús með nokkra stigaganga en 38 prósent íbúða eru félagslegt húsnæði og allt að 50 prósent eigna eru í einstaka stigagangi.

Deilurnar birtast skýrt í áliti kærunefndar húsamála, en þar njóta málsaðilar nafnleyndar en ætla má af samhenginu að þar sé húsfélag fjölbýlishúss á Hallgerðargötu að kvarta undan Félagsbústöðum og Reykjavíkurborg.

Formaður húsfélagsins fékk upplýsingar um það í ágúst 2023 að búið væri að opna svokallaðan íbúðakjarna í einum húshlutanum. Í sama mánuði hafi nokkrir skjólstæðingar borgarinnar, sem eiga við geðræn vandamál að stríða, flutt inn.

Ungbarnaleikskóli rekinn í húsinu

Á fundi Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar með húsfélaginu í september 2023 kom fram að þarna hefði verið opnaður íbúðakjarni sem ætti að þjónusta íbúa í sex íbúðum af þeim 19 sem eru í eigu borgarinnar í húsinu. Þar að auki væri starfrækt þjónustumiðstöð fyrir íbúana í annarri íbúð. Húsfélagið furðaði sig á þessu enda taldi það að um leyfisskylda starfsemi væri að ræða sem þyrfti að fá leyfi allra eigenda fyrir. Hvorki húsfélagið né eigendur hefðu verið upplýstir um þessa breyttu nýtingu íbúðanna.

Velferðarsvið fylgdi þessum fundi eftir með bréfi þar sem vísað var í reglugerð um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk og rétt þess til búsetu á almennum markaði. Hvergi var þó minnst á það í bréfinu að um væri að ræða íbúðakjarna og að úrræðið krefðist sólarhringsvöktunar af hendi starfsfólks á vegum borgarinnar. Starfsfólk borgarinnar er þarna á vöktum allan sólarhringinn og heldur utan um lyfjagjafir, matarinnkaup og matseld fyrir íbúa. Þar með hafi eins verið starfrækt nokkurs konar mötuneyti í þessum kjarna.

Í húsinu er einnig rekinn ungbarnaleikskóli og velti húsfélagið fyrir sér hvort það væri heppilegt að reka íbúakjarna fyrir geðfatlaða í sama húsnæði og leikskóla. Í húsinu eru 81 íbúð, þar af 17 í eigu borgarinnar og 14 í eigu Brynju sem leigir íbúðir til öryrkja og fatlaðra.

Húsfélagið taldi að þarna væri alltof hátt hlutfall af félagslegu húsnæði, eins hafi eigendum íbúða ekki verið gerð grein fyrir fyrirhuguðum íbúðakjarna þegar þeir keyptu íbúðir sínar. Ekkert komi heldur fram um þetta í deiliskipulagi eða í sölugögnum eignanna. Húsfélagið taldi að umfang starfsemi þessa íbúðakjarna í sjö íbúðum sé umfram það sem eigendur hafi mátt búast við í fjöleignarhúsi. Þetta hafi því í för með sér verulega röskun og óþægindi en auk þess hafi borgin ekki spurt kóng né prest áður en ráðist var í þennan rekstur.

Gengur ekki upp að þurfa samþykki allra

Borgin tók fram að viðmið þeirra um hlutfall félagslegs húsnæðis í hverju húsi sé úr húsnæðisstefnu borgarinnar sem hafi enga þýðingu í þessu máli enda ekki þriðja aðila að byggja á þessari stefnu. Eins hafi eign Brynju á íbúðum enga þýðingu fyrir borgina. Ónæði geti stafað frá öllum og ekkert bendi til að það sé meira ónæði frá fötluðum og öryrkjum. Ef upp komi mál hvað íbúa íbúðakjarnans varðar þá yrði kvörtun þess efnis tekin til skoðunar eins og almennt með íbúa Félagsbústaða. Þjónusta við fötluðu íbúana yrði þó ekki aflögð bara út af afstöðu húsfélagsins til slíkrar þjónustu almennt.

Borgin tók fram að ef samþykki íbúa fjölbýlishúss væri skilyrði fyrir þjónustu við fatlað fólk yrði erfitt að tryggja fötluðum þau búsetuúrræði sem lög kveða á um.

Ekkert sem sanni ónæði eða rask

Kærunefndin tók fram að samkvæmt lögum um fjöleignarhús þurfi samþykki allra eigenda fyrir breytingum á hagnýtingu séreignar sem hefur í för með sér verulega meira ónæði, röskun eða óþægindi fyrir aðra eigendur. Aðrir eigendur geti þó ekki sett sig á móti slíkum breytingum ef ekki er um neina röskun að ræða. Rök húsfélagsins fyrir ónæði og röskun byggi þó á hugleiðingum en ekki gallhörðum gögnum.

Kærunefndin sagði í áliti sínu þann 11. júní:

„Um er að ræða búsetu fatlaðra einstaklinga í íbúðarhúsnæði sem eru í þörf fyrir þjónustu sveitarfélags. Samkvæmt því sem rakið hefur verið liggja engin gögn fyrir sem styðja það að sú lögbundna þjónusta sem þeir þiggja í starfsmannaíbúðinni sé af slíkum toga að lögmætir hagsmunir annarra eigenda séu fyrir borð bornir. Þá er það ekki hlutverk kærunefndar að taka afstöðu til þess hvort þessi hagnýting á íbúðunum kalli á breytingar á deiliskipulagi eða hvort upplýsingar af þessum toga eigi að koma fram í sölugögnum á grundvelli fasteignakaupalaga. Með hliðsjón af öllu því sem rakið er hér að framan er kröfum álitsbeiðanda hafnað.“

Kærunefnd telur að hafna beri kröfum húsfélagsins en tekur fram að þetta álit hindri ekki húsfélagið í að leita til dómstóla með venjulegum hætti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Umhverfisnefnd Garðabæjar leitar eftir ábendingum frá íbúum

Umhverfisnefnd Garðabæjar leitar eftir ábendingum frá íbúum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Guðrún Karls svarar fyrir sig: Þjóðkirkjan ekki að breytast í múslímska kirkju – „Þá væri mér að mæta“

Guðrún Karls svarar fyrir sig: Þjóðkirkjan ekki að breytast í múslímska kirkju – „Þá væri mér að mæta“
Fréttir
Í gær

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025
Fréttir
Í gær

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags