fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Kærir Fjarðabyggð vegna útboðs á parhúsi – „Þetta lyktar af klíkuskap og gerir lítið úr þeim sem buðu og vinnu fasteignasalans“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 7. júní 2025 09:00

Húsið er parhús sem stendur við Sólvelli 10b. Skjáskot/Ja.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona hyggst kæra ákvörðun sveitarfélagsins Fjarðabyggðar um að taka tilboði í parhús á Breiðdalsvík sem var lægra en hennar. Fasteignasalinn framlengdi tilboðsfrestinn en bæjarráð tók það ekki gilt.

„Þetta snýst ekki aðeins um að við höfum ekki fengið húsið. Þetta snýst um vinnubrögðin. Þetta lyktar af klíkuskap og gerir lítið úr þeim sem buðu og vinnu fasteignasalans. Þetta er klárt brot því það var búið að auglýsa að frestur væri framlengdur og öllum gert það kunnugt,“ segir Stefanía Fjóla Elísdóttir sem var ein af þeim sem gerðu tilboð í hús á Breiðdalsvík.

Framlengdi vegna mikils áhuga

Húsið stendur við Sólvelli 10b og er um 80 fermetra stórt. Breiðdalsvík er um 150 manna sjávarþorp sem stendur við samnefnda vík á Austfjörðum.

Mánudaginn 19. maí samþykkt bæjarráð Fjarðabyggðar að taka tilboði upp á 4,2 milljónir króna í húsið. En hið lága verð er ekki aðeins vegna staðsetningar heldur einnig vegna þess að fara þarf í framkvæmdir á húsinu.

Stefanía, sem er búsett á Akureyri en uppalin á Breiðdalsvík þar sem eiginmaður hennar og sonur búa, bauð hins vegar 4,9 milljónir króna það er eftir að fasteignasalan sem sá um söluna fyrir sveitarfélagið, Lindin Fasteignir, hafði framlengt frestinn.

Ákveðið hafði verið að frestur til að skila inn tilboðum væri fimmtudagurinn 15. maí. En þar sem það bárust svo mörg tilboð framlengdi fasteignasalinn tilboðið til 18. maí og lét alla sem höfðu gert tilboð vita svo þeir hefðu tækifæri til að hækka sig.

Stefanía skilaði inn munnlegu tilboði fyrir 15. maí sem var hærra en 4,2 og svo endanlegu tilboði upp á 4,9 fyrir 18. maí. En þau voru ekki tekin gild af bæjarráði.

Framlenging ekki tekin gild

„Við tókum hæsta boði sem kom fyrir tilskilinn tíma,“ segir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar. „15. maí var eini fresturinn sem bæjarráð hefur tekið ákvörðun um. Ef við hefðum ákveðið að taka tilboðum sem komu eftir þann tíma hefðum við verið að brjóta stjórnsýslulög.“

Ragnar Sigurðsson formaður bæjarráðs. Mynd/Fjarðabyggð

Aðspurður um hinn framlengda frest segir Ragnar að það hafi ekki verið á vegum sveitarfélagsins. Hann segir það ekki vera vantraust á fasteignasalann af hálfu sveitarfélagsins að virða ekki framlenginguna. Einnig segist hann ekki vita á hvaða forsendum þetta hafi verið gert.

„Það eina sem ég horfi til er að þegar við opnum tilboðin í bæjarráði þá erum við með þessi gögn fyrir framan okkur. Það voru tilboðin sem bárust fyrir tilskilinn tíma og einu tilboðin sem við getum tekið gild,“ segir Ragnar.

Fékk lögmann í málið

Eins og áður segir ætlar Stefanía Fjóla ekki að láta málið kyrrt liggja. Fjölskylda hennar sé mjög svekkt yfir því hvernig málið hafi verið unnið af hálfu sveitarfélagsins. Tilboð hennar hafi verið 20 prósentum hærra en það tilboð sem tekið var.

Hún segist hafa gert athugasemdir og sé komin með lögmann í málið. Ákvörðun bæjarráðs verði kærð, annað hvort til héraðsdóms eða í annars konar kæruferli.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Í gær

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð