fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Pressan

Neitaði alla tíð að hafa myrt eiginkonu sína – svo bað hann son sinn um að gera sér hrottalegan greiða

Pressan
Mánudaginn 2. júní 2025 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Debbie Griggs var ólétt af sínu fjórða barni þegar hún hvarf sporlaust árið 1999. Tuttugu árum síðar var eiginmaður hennar, Andrew Griggs, sakfelldur fyrir morð hennar og dæmdur í lífstíðarfangelsi. Nú hefur þremur árum til viðbótar verið bætt við dóminn eftir að Griggs reyndi að beita brögðum til að losna úr fangelsi.

Griggs hefur ávallt neitað sök í málinu, í það minnsta opinberlega. Það bar þó minna á meintu sakleysi hans þegar einn sona hans heimsótti hann í fangelsið. Hann bað nefnilega son sinn um að gera sér hrottalegan greiða. Það eru líklega á börn sem hafa fengið viðlíka beiðni frá foreldri en Griggs bað son sinn um að grafa upp steypt undirlagið undir skúr við heimili fjölskyldunnar. Þar myndi sonurinn finna móður sína. Griggs bað son sinn um að taka hár af líkinu, skella sér í utanlandsferð með hárið og senda það svo frá útlöndum til lögreglunnar í Bretlandi. Sonurinn þyrfti svo að skrifa bréf og kvitta undir það sem Debbie. Bréfið og hárið myndu sanna að Debbie væri enn á lífi og þá myndi lögreglan neyðast til að láta Griggs lausan.

Hárið var þó aldrei sent til lögreglu. Þess í stað var tæknideildin send að skúrnum og tókst loksins, í október árið 2022, að finna Debbie sem gat þar með loksins við lögð til hinstu hvílu.

Griggs var í framhaldinu yfirheyrður enda erfiðara fyrir hann að neita sök eftir að hafa bókstaflega vísað á líkamleifar eiginkonu sinnar. Griggs neitaði þó að svara spurningum heldur las bara upp yfirlýsingu þar sem hann fullyrti enn og aftur að hann hefði ekki myrt eiginkonu sína. Hann hafi hreinlega fundið lík hennar í einhverjum garði, orðið mjög brugðið og vafið líkið inn í einangrunarplast. Síðan hljóti það að hafa æxlast þannig að einhver annar hafi mætt á svæðið og grafið Debbie undir skúrnum hans. Hann hafi grunað að líkið væri þar að finna en ekki verið viss og því beðið son sinn um að kanna þetta.

Griggs var aftur ákærður. Að þessu sinni fyrir að afvegaleiða rannsókn lögreglu og hindra framgang réttvísinnar.

Rannsóknarlögreglumaður sagði fyrir dómi í síðustu viku að allir sem þekktu Debbie hafi vitað að hún hafði helgað börnum sínum bæði líf sitt og sál. Það sé því ómögulegt að hún hafi yfirgefið börn sín sjálfviljug, líkt og Griggs hafi haldið fram.

„Eiginmaður hennar hefur vitað örlög hennar allt frá því að hann tilkynnti fyrst um hvarf hennar, en þá hafði hann þegar myrt hana með hrottalegum hætti og falið lík hennar. Svo hélt hann áfram að ljúga og ráðskast með aðra, jafnvel eftir að líkamsleifar hennar fundust, og skáldaði upp ótrúlegar sögur sem eru móðun við minningu Debbie og við alla sem hana syrgja enn í þann dag í dag. Það að hann hafi beðið fjölskyldumeðlim að grafa upp lík hennar sýnir hversu harðbrjósta og eigingjörn manneskja hann er, hann leiddi ekki einu sinni hugann að því hversu mikilli angist þessi beiðni myndi valda fjölskyldumeðlimi hans.“

Saksóknarinn sagði að hún hafi aldrei vitað eins óforskammaða tilraun til að afvegaleiða rannsókn. Griggs hafi áratugum saman logið að öllum í kringum sig.

„Núna rúmum 25 árum eftir að Debbie hvarf vonum við að fjölskylda hennar og vinir geti loksins lokað þessum kafla lífsins, vitandi að Andrew Griggs hefur alfarið verið látinn bera ábyrgð á ekki bara morði Debbie heldur öllum lygunum í kjölfarið.“

Independent greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Skilaði stolnum fornleifum vegna bölvunar og krabbameins

Skilaði stolnum fornleifum vegna bölvunar og krabbameins
Pressan
Í gær

Martröð foreldra eftir að sjö ára sonur þeirra varð fyrir bíl – Nú hafa þeir verið handteknir

Martröð foreldra eftir að sjö ára sonur þeirra varð fyrir bíl – Nú hafa þeir verið handteknir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Manga-teiknimynd veldur ótta í Japan – Ferðamenn flýja

Manga-teiknimynd veldur ótta í Japan – Ferðamenn flýja
Pressan
Fyrir 2 dögum

Myrti frænku sína – Höfðar mál á hendur sjónvarpsstöð

Myrti frænku sína – Höfðar mál á hendur sjónvarpsstöð