People skýrir frá þessu og segir að konan heiti Alexis Hawkins. Þau höfðu komist í samband við hvort annað á Instagram og eftir að hafa skrifast á, ákváðu þau að hittast í Indianapolis í Indiana.
Stefnumótið átti að fela í sér góðan mat og huggulegheit miðað við það sem kemur fram í skilaboðum sem þau sendu hvort öðru á Instagram. Lögreglan er með afrit af þessum skilaboðum.
Jarrel fór beint úr vinnu til að hitta Alexis. Áður hafði hann fengið ömmu sína til að gæta þriggja ára dóttur sinnar, Honey.
Hann sótti Alexis en hún hafði ekki tíma til að fara á veitingastað. Þess í stað komu þau við á McDonald‘s og síðan í áfengisverslun.
Á leiðinni sendi Alexis fjölda smáskilaboða til Brian Winston, sem er unnusti hennar. Þau voru að skipuleggja fyrirsát.
Tveimur klukkustundum eftir að Jarrel og Alexis hittust, fannst hann látinn, liggjandi í blóðpolli við bílinn sinn. Hann hafði verið skotinn mörgum skotum.
Lögreglan fann farsímann hans nærri líkinu. Í honum voru skilaboðin frá Alexis. Hún var handtekin 14 dögum síðar og færð til yfirheyrslu. Þar neitaði hún að vita nokkuð um morðið en þegar lögreglan sýndi henni skilaboðin, sem hún hafði sent Brian, bað hún um að fá að ræða við lögmann.
Alexis og Brian sitja nú í gæsluvarðhaldi, grunuð um að hafa myrt Jarrel.
Lögreglan vinnur út frá þeirri kenningu að þau hafi ætlað að kúga fé út úr honum en þess í stað hafi þetta endað með morði.