fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
Fókus

Móðir sextán ára drengs stígur fram – Var vakandi í fimm daga að leita að honum

Fókus
Mánudaginn 12. maí 2025 08:50

Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðir sextán ára drengs sem glímir við fíknivanda er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.

Móðirin kemur fram nafnlaus til þess að vernda son sinn. Við ætlum að kalla hann Jónas.

Jónas byrjaði að ýta sér áfram á rassinum, sem smábarn, eftir að hann fattaði að hann gæti hreyft sig sjálfur var hann aldrei kyrr.

„Hann var alltaf glaður, upp um allt og út um allt,“ segir móðir hans og bætir við að hún hafi snemma fengið spurningar á leikskólanum hvort hún héldi að hann væri ofvirkur.

„Ég hélt bara að strákar væru svona.“

Fékk greiningu snemma

Jónas fékk ADHD greiningu á síðasta ári í leikskóla og var rosalega spenntur að byrja í skóla.

Aðspurð hvort hún hafi verið hrædd við skólagöngu Jónasar segir hún: „Nei, hann var svo spenntur að ég og við vorum bara spennt með honum.“

„Ég á mynd af honum fyrir fyrsta skóladaginn í fyrsta bekk og svo fyrsta daginn í öðrum bekk. Það er eins og það sé sitthvort barnið. Hann langaði ekkert í skólann í öðrum bekk. Öll gleði var farin.“

Aðspurð hvað hún eigi við með þessu og hvað hafði gerst á þessum tíma hjá barninu segir hún: „Hann upplifði strax í fyrsta bekk að hann væri fyrir, passaði ekki inn og af því hann gæti ekki setið kyrr þá var hann fyrir.“

Foreldrarnir skildu. Mynd/Getty

Foreldrarnir skildu

Með tímanum komu í ljós námsörðuleikar sem jaðarsettu Jónas enn meira innan skólakerfisins.

„Ég og pabbi hans skildum og það var ekki fallegur skilnaður. Við ákváðum í sameiningu að finna skóla sem átti að henta honum vel og pabbi hans flutti í hverfið sem skólinn var. Jónas flutti svo til pabba síns til þess að fara í þann skóla og til þess að geta eignast vini.“

Til að byrja með gekk auðvitað vel en fljótlega fór Jónas að vera fyrir í skólanum, var mikið settur fram á gang í sófa þar sem hann átti að „hvíla sig“ en mjög fljótlega var hann settur í námsver.

„Í mínum huga var námsver eitthvað sem átti að hjálpa honum en ég er reið út í sjálfa mig í dag að hafa treyst þessu. Hann var bara geymdur þarna og fékk enga kennslu.“

Rekinn úr skóla

Í áttunda bekk fór Jónas í einkarekinn grunnskóla í Hafnarfirði þar sem hann var afburða klár á tölvur. „Ég spurði hvort skólastjórnendur vildu ekki fá pappíra og gögn um hann og stöðu hans en þeir afþökkuðu það og sögðust vilja kynnast honum frá grunni. Það er falleg hugsun en eftir á sé ég að það var rangt.“

Jónas var fljótur að upplifa sig fyrir og upplifa höfnun. Hann fór í mótþróa og fór að sýna einhverja áhættuhegðun.

Hann var rekinn úr skólanum í tíunda bekk. Eftir það fór allt niður á við og Jónas leitaði í neyslu, í hóp krakka sem samþykktu hann.

Kerfið ráðalaust vegna skapofsakasta unglings – „Við höfum þurft að læsa herbergjunum til að vera viss um að lifa af nóttina“ - DV
Stuðlar.

Gat ekki lagt inn beiðni vegna sumarfrís starfsmann

Mikið hefur verið í umræðunni hvernig úrræði fyrir börn og unglinga séu á Íslandi. Þegar Jónas var rekinn úr grunnskóla voru þau að bíða eftir MST á vegum barnaverndar. Hann leiddist hratt út í mikla neyslu en ekki má sækja um meðferð á Stuðlum á meðan önnur þjónusta er í gangi eða önnur umsókn í kerfinu.

„Mér var sagt að MST væri dýrasta úrræði sem til væri og upplifði að ég ætti nú bara að vera þakklát fyrir að fá það. Á þeim tíma þurfum við annað.“

„Um leið og MST kláraðist hringdi ég til að sækja um meðferð en þá var það ekki hægt útaf sumarfríi. Ég gat ekki lagt inn beiðni í sex vikna sumarfríi starfsmanna Stuðla.“

Leitaði í fimm daga af honum

Það tekur rosalega á að eiga barn í þessari stöðu. Móðir Jónasar leitaði stundum dögum saman af honum og rifjar upp þegar hún hafði verið vakandi í fimm daga og var úti að leita.

„Maður er ekki góður ökumaður þegar maður hefur verið vakandi í fimm daga. Ég hef kynnst öðrum mömmum stráka í sömu stöðu sem hefur hjálpað mér mikið. Loksins skildi mig einhver, án þess að gefa ráð eða dæma mig. Það er svo dýrmætt,“ segir hún.

„Það er ekkert úrræði á Íslandi sem er eingöngu fyrir drengi. Af hverju má ekki kaupa Háholt? Svör stjórnvalda eru þau að sjúkrabíll er of lengi á leiðinni. Ef eitthvað mjög alvarlegt kemur upp á, má þá ekki kalla út þyrlu? Mæður þessara drengja vilja senda þá á Háholt. Vandamálið er að það er ekki hlustað á foreldra,“ segir Tinna Barkadóttir, hjá Sterk saman.

„Kristrún Frostadóttir var svo djúpt snortin yfir föllnum hermönnum eftir einhverja athöfn úti í heimi að hún ákvað að gefa auka tvo milljarða í vopnakaup“, segir móðir Jónasar og bætir við: „Snerti hana ekkert þegar barn lést í umsjón ríkisins inni á stofnun sem ríkið á og ber ábyrgð á?“ Geir Örn, sem lést á Stuðlum, var vinur Jónasar.

Sjá einnig: Nonni missti son sinn og ber starfsmann þungum sökum:„Drengurinn fékk fyrstu benzo lyfin á Stuðlum, hjá starfsmanni“

Hefur strokið

Staðan í dag er sú að Jónas komst inn á Blönduhlíð, sem staðsett er inni á Vogi. „Hann hefur strokið þaðan tvisvar eða þrisvar, til dæmis í útiveru þar sem farið varið með krakkana í Skeifuna. Einnig hefur verið neysla þarna inni.“

Aðspurð hvað tekur við eftir Blönduhlíð segir hún: „Ekkert í raun. Fær að hitta sálfræðing af Vogi og ráðgjafa einu sinni í viku en engin meðferð. Hann féll auðvitað strax og í öllum bæjarleyfum. Hann átti bara að læra af því.“

Að lokum kemur frá Sterk saman: „Við, sem samfélag, erum ekki að gera neitt til að hjálpa þessum týndu börnum. Þau fá sömu skilaboð allstaðar, þau eru fyrir, þau eru í afgangs flokki og ekki þess virði að hjálpa. Horfum okkur nær!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýjar myndir af Hilary Duff vekja athygli – Sögð komin með sömu kinnbein og Madonna

Nýjar myndir af Hilary Duff vekja athygli – Sögð komin með sömu kinnbein og Madonna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Allt sem þú þarft að vita um Ungfrú Ísland TEEN

Allt sem þú þarft að vita um Ungfrú Ísland TEEN
Fókus
Fyrir 4 dögum

Útskýrir af hverju hann ætlar að gefa nánast allan sinn auð

Útskýrir af hverju hann ætlar að gefa nánast allan sinn auð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simon Cowell afhjúpar villta kynlífsbeiðni – Parið var tilbúið að borga 19 milljónir

Simon Cowell afhjúpar villta kynlífsbeiðni – Parið var tilbúið að borga 19 milljónir
Fókus
Fyrir 4 dögum

Læknir varar fólk við því að pissa í sturtu

Læknir varar fólk við því að pissa í sturtu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Wacken Metal Battle: Flösuþeytarar etja kappi á laugardag um að fá að spila í fyrirheitna landinu

Wacken Metal Battle: Flösuþeytarar etja kappi á laugardag um að fá að spila í fyrirheitna landinu