fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
433Sport

Ólafur Ingi eftir jafntefli í Víkinni – „Við bökkum hvorn annan upp, þetta gerist“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 10. apríl 2026 21:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ágætlega ánægður með stigið,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks eftir 1-1 jafntefli gegn Víkingi í fyrsta leik Bestu deildarinnar.

Gestirnir úr Kópavogi byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir strax á 4. mínútu þegar Kristófer Ingi Kristinsson skoraði snemma marks. Breiðablik hélt forystunni lengi vel og var skipulagt í sínum varnarleik.

Víkingar sóttu meira þegar leið á leikinn og fengu nokkur góð færi til að jafna. Það var svo á 71. mínútu að Gylfi Þór Sigurðsson steig fram og skoraði jöfnunarmarkið fyrir heimamenn. Anton Ari Einarsson gerði sig þá sekan um slæm mistök þegar hann hreinsaði beint í fætur Gylfa.

„Mér fannst við öflugir varnarlega, gerðum ekki nóg á boltann. Vorum pínu shaky og vantaði ró í okkur.“

Ólafur var svekktur með jöfnunarmarkið en segir alla standa saman.

„Ég er ágætlega ánægður með stig, þetta er partur af fótbolta. Við bökkum hvorn annan upp, þetta gerist. Maður hefði viljað hafa stigin þrjú, við leiðum stóran hluta leiksins.“

Viðtalið er í heild hér að ofan og neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð

Eigendur Liverpool telja að Slot eigi að halda áfram á næstu leiktíð
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nánast öruggt að hann fari til Tottenham ef þeir falla ekki

Nánast öruggt að hann fari til Tottenham ef þeir falla ekki
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt

Bruno fer yfir þá hluti sem Carrick hefur breytt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Jónas Guðni í stórt starf í Keflavík

Jónas Guðni í stórt starf í Keflavík
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari

Telur dómara reyna allt til þess að Ronaldo verði meistari
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Enska stórliðið horfir til Barcelona – Umboðsmaðurinn vinnur í því að koma honum burt

Enska stórliðið horfir til Barcelona – Umboðsmaðurinn vinnur í því að koma honum burt
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Henry yfirgaf settið í beinni útsendingu

Henry yfirgaf settið í beinni útsendingu
433Sport
Í gær

Er að skrifa undir nýjan samning

Er að skrifa undir nýjan samning
433Sport
Í gær

Svona fengi England ellefu Evrópusæti á næstu leiktíð

Svona fengi England ellefu Evrópusæti á næstu leiktíð