fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Elías hefur litlar áhyggjur af því að vera á útivelli í úrslitaleiknum – „Við þurfum að fá fólkið okkar þangað“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 9. mars 2026 14:00

Elías Rafn Ólafsson. Mynd DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Midtjylland tryggði sér sæti í úrslitaleik danska bikarsins eftir 1-1 jafntefli við AGF á sunnudag. Liðið sigraði 2-1 samanlagt. Landsliðsmarkvöðurinn Elías Rafn Ólafsson stóð að sjálfsögðu í rammanum hjá Midtjylland.

Ríkjandi lands- og bikarmeistarar FCK verða mótherjinn í úrslitunum. „Stemningin er frábær og þetta verður spennandi. Þetta er stærsti leikur í Danmörku og verður mjög gaman að spila hann,“ sagði Elías eftir leik.

Hann telur að um hörkuleik verð að ræða, en hann fer fram 14. maí á Parken, sem er þjóðarleikvangur Dana en jafnframt heimavöllur FCK.

„Þetta verður jafn leikur. Þetta eru tvö mjög stór lið og við ætlum að fylla Parken af aðdáendum Midtjylland. Við þurfum að fá fólkið okkar þangað, þetta verður frábær leikur.“

Um Íslendingaslag verður að ræða í úrslitaleiknum. Í FCK eru Viktor Bjarki Daðason og markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Xavi varpar sprengju – Segir forsetann hafa komið í veg fyrir skipti Messi

Xavi varpar sprengju – Segir forsetann hafa komið í veg fyrir skipti Messi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Horfa til framherja Tottenham – Líklega einfalt að fá hann ef liðið fellur

Horfa til framherja Tottenham – Líklega einfalt að fá hann ef liðið fellur
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Elon Musk fær á baukinn – Ógeðsleg ummæli um Diogo Jota meðal annars látin falla

Elon Musk fær á baukinn – Ógeðsleg ummæli um Diogo Jota meðal annars látin falla
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sat við hlið Kjartans og rifjaði upp þegar hann gerði honum óleik í viðtali – „Ég gleymi því aldrei“

Sat við hlið Kjartans og rifjaði upp þegar hann gerði honum óleik í viðtali – „Ég gleymi því aldrei“
433Sport
Í gær

Kjartan og Andri gefa lítið fyrir breytingatillögu goðsagnarinnar

Kjartan og Andri gefa lítið fyrir breytingatillögu goðsagnarinnar
433Sport
Í gær

Útsendarar Real Madrid mættu til að fylgjast með Tonali

Útsendarar Real Madrid mættu til að fylgjast með Tonali
433Sport
Í gær

„Þetta er auðvitað geggjaður ferill“

„Þetta er auðvitað geggjaður ferill“
433Sport
Fyrir 2 dögum

City og Chelsea hafa áhuga á sama miðjumanninum

City og Chelsea hafa áhuga á sama miðjumanninum