fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Tottenham leitar til manns sem hefur gert vel á markaðnum

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. mars 2026 16:30

Dougie Freedman.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham er sagt hafa áhuga á að ráða Dougie Freedman sem nýjan yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu á meðan endurskipulagning stendur yfir innan stjórnar Spurs.

Félagið hefur leitað að eftirmanni Fabio Paratici, sem lét af störfum í janúar eftir sitt annað tímabil sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham.

Freedman vakti mikla athygli fyrir störf sín hjá Crystal Palace þar sem hann gegndi starfinu í átta ár. Á þeim tíma átti hann stóran þátt í að fá til félagsins leikmenn á borð við Michael Olise, Eberechi Eze, Marc Guehi, Adam Wharton og Dean Henderson.

Hann yfirgaf Palace árið 2025 og starfar nú hjá sádiarabíska félaginu Al-Diriyah.

Tottenham vill helst hafa nýjan yfirmann knattspyrnumála í starfi sem fyrst svo hann geti haft áhrif á val á næsta knattspyrnustjóra félagsins. Igor Tudor stýrir liðinu tímabundið fram að lokum tímabilsins.

Einnig er talið að Spurs hafi áhuga á Paul Winstanley hjá Chelsea og Tiago Pinto, sem starfar hjá Bournemouth.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra