

Búið er að draga í átta liða úrslit enska bikarsins. Þar er stórleikur þar sem Liverpool þarf að heimsækja Manchester City.
Chelsea ætti að fljúga áfram en þeir fengu lélegasta liðið í C-deildinni, Port Vale.
Arsenal fékk einnig góðan drátt og fékk Southampton sem er í næst efstu deild.
Þá mætast West Ham eða Brentford í úrvalsdeildarslag í kvöld, sigurliðið þar mætir Leeds.
Drátturinn:
Manchester City vs Liverpool
Southampton vs Arsenal
Port Vale vs Chelsea
West Ham/Brentford vs Leeds