
Stuðningsmenn Manchester United eru ósáttir við hegðun Rasmus Hojlund á samfélagsmiðlum eftir 2-1 tap liðsins gegn Newcastle í vikunni.
Ósigurinn var sá fyrsti undir stjórn bráðabirgðastjórans Michael Carrick. Daninn Will Osula tryggði Newcastle sigurinn með glæsilegu marki þrátt fyrir að liðið væri manni færri.
Hojlund er Samlandi Osula og setti hann reyks-tjákn (e. emoji) undir færslu kappans þar sem hann fagnaði sigrinum.
Margir eru ósáttir þar sem Hojlund er samningsbundinn United, en á láni hjá Napoli þetta tímabilið.
„Hvað er að þessum leikmönnum? Þetta hefði aldrei gerst undir Alex Ferguson,“ skrifaði einn stuðningsmaður á samfélagsmiðla.
Hojlund hefur leikið 32 leiki fyrir Napoli á tímabilinu og skorað 13 mörk í öllum keppnum.