fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
433Sport

Segir að Infantino myndi taka HM af Bandaríkjunum ef hann hefði smá sómakennd – Svartur blettur á knattspyrnunni til frambúðar

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 15. mars 2026 14:00

Infantino forseti FIFA / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gianni Infantino, forseti FIFA, fær harða gagnrýni í skoðanapistli eftir Jeremy Cross, yfirmann fótboltafrétta hjá Daily Mirror.

Í pistlinum gagnrýnir Cross sérstaklega tengsl Infantino við leiðtoga á borð við Donald Trump og segir stöðuna í kringum HM 2026, sem fer að stærstum hluta fram í Bandaríkjunum, vera orðna mjög alvarlega.

„Þegar kemur að Gianni Infantino snýst þetta um félagsskapinn sem hann velur sér,“ skrifar Cross og bendir á að forsetinn hafi áður verið gagnrýndur fyrir tengsl við leiðtoga á borð við Vladimir Putin og Tamim bin Hamad Al Thani.

Hann segir stöðuna nú sérstaklega slæma eftir ummæli Trump um þátttöku Íran, en hann telur ekki viðeigandi að liðið mæti til leiks vestan hafs í sumar vegna ástandsins sem nú ríkir.

„Þetta hefur skapað aðstæður sem eru svo skammarlegar og óskiljanlegar að stærsta mót heims er komið á barmi eyðileggingar,“ skrifar Cross.

Cross telur að FIFA ætti að íhuga að taka mótið af Bandaríkjunum.

„Ef Infantino hefði snefil af sómakennd myndi hann svipta Bandaríkin mótinu. Skömmin sem Infantino skilur eftir sig gæti orðið svartur blettur á fótboltanum sem verður aldrei þveginn burt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar