fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
433Sport

Tveir lykilmenn til sölu – Áhugi frá Englandi

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 13. mars 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dortmund er opið fyrir því að selja Serhou Guirassy og Karim Adeyemi í sumar samkvæmt Sky í Þýskalandi.

Adeyemi hefur ekki viljað framlengja samning sinn við félagið, sem rennur út eftir rúm tvö ár. Félagið skoðar því þann möguleika að selja hann í sumar til að nýta markaðsvirði hans.

Talið er að áhugi sé á honum úr ensku úrvalsdeildinni og víðar. Það sama má segja um Guirassy, sem hefur í þó nokkurn tíma verið á radarnum hjá öðrum félögum.

Guirassy er þá með klásúlu í samningi sínum upp á 50 milljónir evra.

Sóknarmennirnir eru mikilvægir hlekkir í liði Dortmund svo það verður áfall að missa þá, en félagið þarf að hugsa um fjárhaginn einnig.

Dortmund er í öðru sæti þýsku úrvaldeildarinnar, 11 stigum á eftir Bayern Munchen.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband
433Sport
Í gær

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar